Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 41
41. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, miðvikudaginn 9. október 2002 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Bryndís Hólmarsdóttir og Ari Hannesson. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Hermann spurðist fyrir um stöðu mála varðandi vinabæjarsamstarf við Sisimiut á Grænlandi. Upplýst var að fulltrúar frá Sisimiut eru væntanlegir í heimsókn til Hornafjarðar um miðjan október og að í framhaldi af því verður tekin ákvöðun um málið.
Engar athugasemdir voru gerðar.
2. Erindi bæjarráðs um heildarskipulag og rekstur Menningarmiðstöðvar
Samþykkt var að halda vinnufund í menningarmálanefnd föstudaginn 18. október kl. 14:00 þar sem farið verður yfir heildarskipulag og rekstur Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Hermann lagði fram yfirlit þar sem tiltekin eru 10 atriði sem fjalla þarf um á vinnufundinum.
3. Erindi frá FÍT um tónleika
Samþykkt var að kanna hvort möguleiki er að fá eftirtalda aðila til að halda tónleika hér:
- Signý Sæmundsdóttir, sópran og Þóra Fríða Sæmundsdóttir.
- Einar Jóhannesson, klarinett, Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran og Valgerður Andrésdóttir píanó.
4. Samningur við Galdur um vefumsjón
Gísli Sverrir kynnti samninginn sem gerður hefur verið við Galdur um vefumsjón.
5. Jöklasýning - skýrsla um sumarið
Farið var yfir fjárhagslega stöðu Jöklasýningar. Nánar verður farið yfir málið á væntanlegum vinnufundi og gert er ráð fyrir að þá verði lögð fram rekstraráætlun ársins 2003.
6. Aðsókn að söfnum, gestakort
Gísli Sverrir lagði fram yfirlit yfir aðsókn að söfnum Menningar-miðstöðvarinnar fyrstu 9 mánuði ársins. Í Gömlubúð komu 3.896 gestir, í Pakkhús 2.400 og í Vöruhús 3.200. Útlán á bókasafni sem er í nýju húsnæði í Nýheimum voru 2.828 í september sem þýðir að um 50% útlánaaukningu er að ræða frá sama mánuði s.l. ár.
7. Kaup á flygli. Staðan kynnt
Gísli Sverrir fór yfir stöðuna. Kaupverð hljóðfærisins var 3,7 milljónir. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga greiddi flutningskostnað hljóðfærisins frá Þýskalandi til Hornafjarðar og Sparisjóður Hornafjarðar mun greiða þann fjármagnskostnað sem af kaupunum hlýst. Menningarmiðstöðin hefur greitt 1 milljón, Menningarsjóður Austur-Skaftfellinga samþykkt 500 þús kr. framlag og FAS samþykkt 200 þús.kr. framlag. Nokkrir aðilar eru að skoða möguleika á því að styrkja kaupin.
8. Verkefni framundan: Tónleikar, sýningar
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari mun koma og halda tónleika í Nýheimum 10.nóvember n.k.. Hörður Torfason mun halda tónleika í Pakkhúsi 17. nóvember, ljósmyndasýning er fyrirhuguð í Pakkhúsi í nóvember og upplestur rithöfunda verður væntanlega 5. desember.
Leikfélag Hornafjarðar hefur hafið æfingar á „Emil í Kattholti“ og „Eru tígrisdýr í Kongó“. Frumsýningar eru fyrirhugaðar um miðjan nóvember.
Fram kom að Karlakórinn er þátttakandi í verkefninu „Tónlist fyrir alla“ en í því fellst að kórsöngur er kynntur fyrir grunnskólanemum sveitarfélagsins.
9. Starfsáætlun menningarmálanefndar í vetur
Gísli Sverrir lagði fram starfsáætlun nefndarinnar.
10. Endurskoðun á stofnskrá stofnunarinnar
Gísli Sverrir lagði fram tillögu að endurskoðaðri stofnskrá fyrir Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
Safnaráð gerir að skilyrði að formleg stofnskrá liggi fyrir til þess að hægt sé að afgreiða styrki sem sótt er um til stofnunarinnar.
11. Önnur mál
Gísli Sverrir ræddi hugmyndir um framtíð listahátíðar barna.
Gísli lagði fram hugmyndir um erindi til fjárlaganefndar Alþingis.
Fleira ekki tekið fyrir,fundi slitið kl. 18:20


