Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 72
72. fundur
Fundur haldin í menningarmálanefnd mánudaginn 10. október 2005 kl. 17.00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Hermann Hansson, Bryndís Hólmarsdóttir, Ágústína Halldórsdóttir, Guðlaug Hestnes og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Greint frá því að skipt hafi verið um lása í Fundarhúsinu í Lóni. Einnig var sagt frá heimsókn Ársæls Harðarsonar forstöðumanns markaðssvið Ferðamálaráðs vegna markaðssetningu svæðisins.
2. Fjárhagsáætlun
Lögð fram fyrstu drög að rekstrarramma fyrir Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Töluverðar umræður sköpuðust um drög að ramma. Menningarmálanefnd leggur áherslu á að áætlun sé raunhæf. Einnig lögð fram gjaldskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Menningarmálanefnd felur starfsmanni að leggja fram tillögu að nýrri gjaldskrá á næsta fundi í samanburði við núverandi gjaldskrá.
3. Viðhald stofnana
Lagt fram yfirlit frá starfsmönnum Menningarmiðstöðvar. Rætt um að viðhald Gömlubúðar sé ábótavant, nauðsynlegt sé að afmarka lóð í kringum fundarhús Lónmanna og stöðva leka í Nýheimum.
4. Starfsáætlun fyrir árið 2006
Lagt fram uppkast að starfsáætlun og yfirlit yfir verkefni sem áhugi er að sækja um styrk fyrir.
Mikil umræða skapaðist um ýmis verkefni á vegum Menningarmiðstöðvar. Þorbjörg benti á að kvöldvökur í sveitum sem Menningarmiðstöð hafi staðið fyrir hafi lukkast mjög vel. Einnig benti Þorbjörg á að 60 ár séu liðinn frá því að húsnæði Hrollaugstaðaskóla var tekið í notkun.
Menningarmálanefnd felur starfsmönnum að kanna möguleika á að vinna að þessum verkefnum.
5. Hafnarvík-Heppa
Rætt um endurgerð gamla hafnarsvæðisins og uppbyggingu Miklagarðs. Rætt um möguleika á uppbyggingu gistiaðstöðu, handverkshúss, humarveitingastaðar ásamt því að hafa húsið fyrir hluta af þeirri starfsemi sem þegar er þar.
Kom fram að fjármagn hafi fengist til að gera viðskiptaáætlun fyrir uppbyggingu Miklagarðs og til að teikna upp endurbætur að húsinu.
6. Skaftfellingur
Gerð grein fyrir kostnaði við útgáfu næsta Skaftfellings. Kom fram að nýir verktakar komi að gerð umbroti, prentun, bókbandi Skaftfellings og ráðgert að kostnaður lækki.
Menningarmálanefnd leggur áherslu á vandaða vinnu við útgáfuna.
7. Upplýsingamiðstöð ferðamála
Gerð var grein fyrir viðræðum við Ferðamálafélagið og grunnskólana. Kom fram að báðir þessir aðilar hafi verið jákvæðir gagnvart hugmyndinni. Kom fram að Ferðamálafélagið hafi lagt áherslu á að mikilvægt væri að hafa fastan, auglýstan opnunartíma allt árið.
Menningarmálanefnd sér fjárhagslegt hagræði af flutningi upplýsingamiðstöðvar og leggur þess vegna til að hún verði flutt.
8. Önnur mál
o Þorbjörg spurði um ársráðningu forstöðumanns.
Töluverð umræða skapaðist um málið.
Menningarmálanefnd leggur áherslu á að þetta fái formlega afgreiðslu í menningarmálanefnd, bæjarráði og bæjarstjórn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19.10


