Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 42
42. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Menningarmiðstöð Hornafjarðar í Nýheimum, þriðjudaginn 12. nóvember 2002 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Bryndís Hólmarsdóttir, Ágústína Halldórsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir og Elínborg Baldursdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar, 18. október, var lögð fram til afgreiðslu og undirritunar.
2. Erindi bæjarráðs um heildarskipulag og rekstur Menningarmiðstöðvar
Formaður fór yfir tillögu að álitsgerð starfshóps sem skipaður var á síðasta fundi varðandi rekstur Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Mikil umræða var um tillögurnar og voru þær samþykktar samhljóða að því loknu. Í tilefni af umræðu um Jöklasetur var samþykkt að fela Menningarmiðstöðinni að undirbúa, ásamt öðrum stofnunum í Nýheimum, ráðstefnu um Jöklasetur og Vatnajökulsþjóðgarð í janúar 2003.
Ítrekað var við bæjarstjórn að taka afstöðu til safna Sverris Schevings Thorsteinssonar.
3. Fjárhagsáætlun 2003
Fjallað var um ramma að fjárhagsáætlun 2003 sem sendur var frá bæjarráði. Forstöðumaður lagði fram sínar tillögur að fjárhagsáætluninni, sem voru innan ramma bæjarráðs, og var hún samþykkt af nefndinni. Einnig voru lögð fram fyrstu drög að skrá um minnisvarða og útilistaverk í sveitarfélaginu.
4. Stofnframlag frá menntamálaráðuneyti
Rætt var um ráðstöfun þeirra stofnframlaga sem væntanleg eru til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar frá menntamálaráðuneytinu árin 2003 og 2004. Lagt var fram minnisblað með hugmyndum sem ræddar voru. Samþykkt var að ráðstafa þeim fjórum milljónum sem eftir eru til ráðstöfunar á þessu ári til þess að ljúka við endurbætur á Pakkhúsinu. Ákvörun um ráðstöfun fjármuna áranna 2003 og 2004 verði tekin þegar tillögur nefndarinnar um rekstur (sbr. 2. lið þessa fundar) hafa verið afgreiddar og athugun á uppbyggingu Sindrabæjar liggur fyrir.
5. Stefna í menningarmálum 2000-2010
Nokkur atriði reifuð s.s. hugmyndir um bæjarlistamann Hornafjarðar, lista- og fræðimannsíbúð o.fl. Ákveðið að taka stefnumótunina til umræðu síðar og aflað verði upplýsinga um tilhögun ofangreindra þátta hjá öðrum sveitarfélögum.
6. Umsókn um leigu á Pakkhúsinu
Lagt var fram bréf Ingólfs Guðna Einarssonar dags. 29. okt. 2002 þar sem óskað er eftir Pakkhúsinu á leigu næsta sumar. Menningarmálanefnd mælir með því að teknar verði upp viðræður um útleigu hússins og felur forstöðumanni að annast þær ásamt bæjaryfirvöldum. Mælt er með því að húsnæðið verði leigt út á ársgrundvelli og einnig að tryggður verði aðgangur að því fyrir menningarviðburði áfram.
7. Viðburðir framundan
Lagt var fram minnisblað um viðburði fram að jólum. Tónleikar verða í Nýheimum 28. nóvember (Signý og Þóra Fríða Sæmundsdætur), bókmenntakynning í Pakkhúsinu 5. desember og fleiri viðburðir eru til athugunar svo sem tónleikar með Ingveldi Ýr og Söngbók Gunna Þórðar. Einnig var minnst á hagyrðingakvöld og Álftagerðisbræður.
8. Útgáfa Skaftfellings
Lögð voru fram drög að efnisyfirliti 15. árgangs. Kosin var ný ritnefnd Skaftfellings. Hana skipa: Sigurður Björnsson, Zophonías Torfason, Guðbjartur Össurarson, Kristín Gísladóttir og Sigurður Hannesson.
9. Samningur um notendaleyfi fyrir Sarp
Lagður var fram samningur við Rekstrarfélag Sarps dags. 23. okt. 2002. Einnig samþykktir fyrir sama félag.
10. Samningur um Skjávarp Nýheima
Lagður var fram samningur milli stofnana í Nýheimum og Hátíðni dags. 22. okt. 2002
11. Önnur mál
Lagt var fram bréf um áhuga sveitarfélags í Rúmeníu til þess að eignast vinabæ á Íslandi. Ekki tekin afstaða til málsins.
Sagt var frá því að starfsfólk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar hyggur á ferð til Prag næstu daga.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:36


