Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 43
43. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, miðvikudaginn 11. desember 2002 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Heimir Örn Heiðarsson, Ágústína Halldórsdóttir og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Menningarverðlaun 2002. Reglur til endurskoðunar
Nefndarmenn voru sammála um að breyta reglunum á þann hátt að heimilt verði að auglýsa eftir tilnefningum. Forstöðumanni var falið að auglýsa tilnefninguna. Samþykkt að skilafrestur tillagna verði til 10. janúar 2003.
3. Umsóknir um styrki
Menningarmálanefnd kom sér saman um ákveðna tillögu að úthlutun styrkja. Nefndin vísar ákvörðun um styrkveitingu til Snorraverkefnisins til bæjarráðs. Frestað er til næsta fundar að birta úthlutunartillöguna.
4. Þórbergssetur
Þorbjörg sagði frá stöðunni í undirbúningi Þórbergsseturs að Hala í Suðursveit en verkefnið hefur fengið vilyrði fyrir 5 milljón kr. fjárveitingu á fjárlögum 2003 auk þess sem margir hafa sýnt áhuga á að koma að verkefninu sem samstarfs- og/eða styrktaraðilar. Menningarmiðstöðin er tilbúin til þess að verða stofnaðili að stofnuninni og að tilnefna þá mann í undirbúningsnefndina jafnframt því að vera stuðningsaðili stofnunarinnar. Nefndin er þó ekki tilbúin að tilgreina stofnframlag nú. Gísli Sverrir Árnason er tilnefndur fulltrúi nefndarinnar í undirbúningsnefnd. Stefnt er að ráðstefnu um Þórberg Þórðarson á vordögum og mun Gísli Sverrir koma að undirbúningi fyrir hönd menningamálanefndar.
5. Jöklasetur
Gísli Sverrir fór yfir stöðuna varðandi undirbúning Jöklaseturs. Menningarmálanefnd telur æskilegt að skipaður verði vinnuhópur sem heldur utan um áframhaldandi vinnu við stofnun setursins. Nefndin tekur undir tillögur Ingu Jónsdóttur varðandi áframhaldandi vinnu m.a. úttekt arkitekta á húsnæðismálum og gerð viðskipta og markaðsáætlunar. Hermann Hansson er tilbúinn til að koma að þessari vinnu fyrir hönd nefndarinnar.
6. Listvinasjóður Hornafjarðar
Farið var yfir skipulagsskrá sjóðsins og lögð voru fram gögn um uppgjör hans. Menningarmálanefnd sammála um að fara á komandi ári í átak til að safna fleiri stuðningsaðilum Listvinasjóðsins en fjöldi þeirra nú er 39.
7. Bréf frá Guðjóni Ketilssyni myndlistarmanni
Menningarmálanefnd þyggur þessa rausnalegu gjöf með þökkum og mun hafa samráð við listamanninn um staðsetningu og uppsetningu á verksinu.
8. Samningar
Meðfylgjandi eru tveir samningar milli Menningarmiðstöðvar og Hátíðni dag. 26. nóv. 2002
a) um sölu auglýsinga í Skaftfelling
b) um sölu auglýsinga á vatnstankinn á Fiskhól
Gísli Sverrir kynnti ofangreinda samninga.
9. Önnur mál
a) Samstarf við Borgarleikhús. Meðf. úr tölvubréfum
Fram kom að Gísli Sverrir er tengiliður sveitarfélagsins við Borgarleikhúsið.
b) Bréf frá Önnu Hildi Hildibrandsdóttur um tónleika næsta sumar
Menningarmálanefnd sér sér ekki fært að styrkja þessa tónleika með beinu fjárframlagi.
Styrkbeiðni frá þorrablótsnefnd í Nesjum til greiðslu húsaleigu í Mánagarði. Menningarmálanefnd hafnar beiðninni.
Hermann lagði fram tillögu um að Menningarmiðstöð gangist fyrir því að haldið verði ættfræðinámskeiði í húsnæði Nýheima. Gísla Sverri falið að skoða málið.
Gísli Sverrir fór yfir framlög á fjárlögum ríkisins til menningarmála á Austurlandi 2003 en samtals nemur upphæðin 103 milljónum og af því koma 22 milljónir til Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Gísli Sverrir sagði frá boði um að nóbelsskáldið Seamus Heaney og sekkjapípuleikarinn Liam O´Flynn heimsækji okkur vorið 2004. Ljóst er að talsverður kostnaður fylgir því að þiggja boðið. Gísla Sverri falið að skoða málið.
Guðlaug sagði frá ánægju þeirra Signýar Sæmundsdóttur og þóru Sæmundsdóttur með aðstöðu til hljómleikahalds í Nýheimum og hljóðfærið í húsinu
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:35
.


