Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 45
45. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, miðvikudaginn 12. febrúar 2003 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Ágústína Halldórsdóttir, Bryndís og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir voru gerðar.
2. Samráðsfundur um menningarmál
Gísli Sverrir fór yfir drög að dagskrá opins fundar um mennningarmál sem fyrirhugað er að halda 1. mars n.k. kl. 13:30 - 16:00 í Nýheimum.
3. Listvinasjóður Hornafjarðar
Gísli Sverrir lagði fram yfirlit um stöðu sjóðsins 6. febrúar 2003. Gísli lagði til að veitt yrði framlag úr sjóðnum til greiðslu á flygli Menningarmiðstöðvar. Menningarmálanefnd samþykkir framlag að upphæð kr. 200.000,- .
4. Listaverk Svavars Guðnasonar
Gísli ræddi um hin fjölmörgu listaverk eftir Svavar Guðnason sem eru í eigu sveitarfélagsins og þær skyldur sem sveitarfélagið hefur um varðveislu og kynningu þessara verka. Fyrirhugað er að setja upp í Vöruhúsinu í sumar sýningu á hluta verkanna.
5. Verkefni framundan
Gísli fór yfir þá viðburði sem verða á næstunni
· 2. mars verða tónleikar Ingveldar Ýrr og Guðríðar Sigurðardóttur í Nýheimum
· Sýning Davíðs Art verður haldin í Pakkhúsi 15. febrúar - 2. mars
· Sýningin Handverk og hönnun verður í Pakkhúsinu 12. april - 22. april
· Munir Sverris Schevings verða til sýnis í Gömlubúð um páskana
· Sýning á verkum Svavars Guðnasonar verður í Vöruhúsinu í sumar
· Saga Leikfélags Hornafjarðar í 40 ár er fyrirhuguð í Nýheimum 7. júní-17. ágúst
· Sýning Önnu Sigrúnar Hróðmarsdóttur og Höddu í Pakkhúsi 4. júlí - 20. júlí
· Austfirskt landslag í íslenskri myndlist í Pakkhúsi 1.ágúst - 10. september
6. Önnur mál
Gísli sagði frá vettvangsskoðun á Stokksnes sem farin vað að beiðni Magnúsar Skúlasonar forstöðumanns Húsfriðunarnefndar. Gísli gerði skýrslu um ferðina en hefur ekki frétt af viðbrögðum.
Rætt var um afhendingu menningaverðlauna sem verður í Nýheimum n.k. föstudag kl.16.
Þorbjörg sagði frá málþingi um Þórberg Þórðarson sem haldið verður 29.-30. maí n.k. á Hrollaugsstöðum. Ýmsir fræðimenn munu halda erindi á málþinginu m.a. Sóffía Auður Birgisdóttir og Pétur Gunnarsson.
Gísli sýndi nýjasta eintak Skaftfellings sem kom út í dag.
Hermann spurði um endurbætur á Pakkhúsi og útleigu á húsinu. Gísli sagði að enn vanti kostnaðaráætlun og hönnunargögn frá arkitekti til að hægt sé að gera sér grein fyrir heildarkostnaði við að ljúka endurbótunum. Verið er að skoða möguleika á að móta heildstæðar reglur í sveitarfélaginu um útleigu á húsnæði í eigu þess.
Rætt var um styrkumsóknir til ýmissa verkefna.
Rætt var um að undirbúningur Jöklasýningar verði á höndum Menningarmiðstöðvar.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:05


