Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 47
47. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, miðvikudaginn 9. april 2003 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Þorbjörg Arnórsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir og Ágústína Halldórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar, 12. mars til kynningar. Einnig bókun bæjarráðs vegna fundargerðarinnar.
Bryndís Hólmarsdóttir var boðin velkomin sem aðalmaður í nefndinni.
2. Menningarráð Austurlands
Lögð voru fram ýmis gögn til kynningar, svo sem um styrki frá ráðinu, aðalfund 28. apríl n.k. o.fl. Nefndin fagnar því mikilvæga starfi sem fer fram á vegum Menningarráðs Austurlands.
3. Hafnarvík – Heppa. Uppbygging gamla hafnarsvæðisins
Farið var yfir fyrri umræðu um málið og þá stefnumörkun sem liggur þegar fyrir. Varpað var fram spurningunni um hvað menningarmálanefnd geti gert til að þoka málinu áleiðis? Ekki eru áform um framkvæmdir eða viðgerðir á næstunni, nema hvað varðar Pakkhúsið, en æskilegt væri að láta vinna úttekt á ástandi Miklagarðs og áætlun um hugsanlegan viðgerðarkostnað til þess að auðvelda umræðu í framtíðinni og fjármögnun.
4. Pakkhúsið
Samningur við Kaffihornið var lagður fram. Ekki hefur verið gengið frá samningum við Handraðann og Humarhátíðarnefnd. Einnig var kynntur áhugi Lionsklúbbanna varðandi leigu á húsinu yfir veturinn. Lögð var fram gjaldskrá bæjarráðs frá 26. mars sl. en framangreindir samningar byggja á henni. Þorbjörg taldi að betra hefði verið að einfalda gjaldskrána í stað þess að taka gjald fyrir hverja klukkustund.
5. Menning um páska og dagskrá framundan
Dagskrá sýninga um páskana var lögð fram á fundinum. Einnig staðfest að ættfræðinámskeið verði haldið 2. - 4. maí. Þá var sagt frá því að unnið væri að því að fá Jón Böðvarsson til þess að flytja fyrirlestur um Njálu á næstunni.
6. Önnur mál
· Upplýst var að nokkrar umsóknir hefðu borist um ný störf sem auglýst voru nýlega hjá Menningarmiðstöðinni. Umsóknarfrestur rennur út í dag.
· Minnt var á nauðsyn þess að bæjarráð taki afstöðu til tilboðs Sverris Schevings Thorsteinssonar um söfn hans, maðal annars með tilliti til eflingar jöklasýningar.
· Einnig var minnt á nauðsyn þess að skrásetja menningarminjar í sveitarfélaginu. Var samþykkt að beina því til búnaðarfélaga í sýslunni að hvetja bændur til þess að huga að varðveislu heimilda um þær.
· Þorbjörg sagði frá málþingi Þórbergsseturs 29. og 30. maí n.k.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:50


