Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð menningarmálanefndar 70

70. fundur

Fundur haldin í menningarmálanefnd miðvikudaginn 14. september 2005 kl. 16.00 í fundarsal Nýheima.

Mætt voru: Hermann Hansson, Bryndís Hólmarsdóttir, Ágústína Halldórsdóttir, Guðlaug Hestnes og Ari G. Hannesson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerð síðasta fundar

Lögð fram fundargerð frá 25. maí til kynningar. Guðlaug áréttaði mikilvægi þess að farið yrði út í kynningu á svæðinu og tengsl við fjölmiðla á Austurlandi og á landsvísu eflt.

2. Dagbók vetrarins 2005-2006 Hjalti fór yfir skipulag vetrarins.

3. Aðsóknartölur safna

Kom fram að aðsókn að Jöklasýningu hafi verið góð. Alls komu 6426 gestir á sýninguna í sumar samanborið við 4432 gesti allt árið í fyrra. Aðsókn í Gömlubúð hefur einnig verið ágæt. Sumarið fór vel af stað og aðsókn í sumar var töluvert betri en í fyrra. Fyrstu átta mánuði ársins hafa komið 3473 gestir í Gömlubúð samanborið við 3222 allt árið í fyrra.

4. Erindisbréf menningarmálanefndar

Lagt fram erindisbréf menningarmálanefndar frá 2002. Umræður sköpuðust um hlutverk nefndarinnar.

Rætt var t.d. um það hlutverk sem nefndin hefur gagnvart vinabæjum erlendis og þeirri spurningu varpað upp hvort þetta ætti ekki frekar að heyra beint undir bæjarráð.

Einnig var rætt um minnisvarða í sveitarfélaginu og mikilvægi þess að hirða minnisvarðana sjálfa og svæðin í kringum þá. Þá skapaðist umræða um hlutverk menningarmálanefndar varðandi umsjón með Jöklasýningu.

Menningarmálanefnd lýtur á að hlutverk nefndarinnar varðandi Jöklasýningu sé lokið þegar sjálfseignarstofnun hefur verið komið á fót.

5. Staða fjármála

Gerð var grein fyrir stöðu fjármála þann 9. september 2005. Kom fram að búið er að bóka suma kostnaðarliði þannig að þeir sýna 9 mánaða stöðu, t.d. reiknaða húsaleigu miðað við reglu. Rauntölur eru í samræmi við áætlun.

6. Uppgjör vegna Jöklasýningar

Lagt fram uppgjör vegna Jöklasýningar og yfirliti yfir fjármögnun hennar. Kom fram að framkvæmdirnar hafi kostað 44 m.kr. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 60 m.kr. og þar af var ráðgert að leggja umtalsverða fjárhæð í markaðssetningu. Varðandi markaðssetningu að þá hefur verið óskað eftir samstarfi við Atvinnuþróunarsjóð Austurlands um gerð markaðsáætlunar fyrir Jöklasýningu. Einnig hefur verið rætt við Ferðamálafélagið um samstarf í þeim efnum. Báðir þessir aðilar eru jákvæðir.

7. Stefnumótun í menningarmálum

Lögð fram drög að stefnumótun. Stefnt að því að hafa vinnufund um þetta efni um mánaðarmótin október nóvember. Á þeim fundi er æskilegt að varamenn nefndarinnar, starfsmenn menningarmiðstöðvar, bæjarráð og bæjarstjóri mæti.

8. Upplýsingamiðstöð

Frá því í mars eru skráðar heimsóknir 4258. Þetta er lágmarkstala því ekki gefst alltaf tími til að skrá heimsóknirnar þegar mesta önnin er. Auk heimsóknanna sjálfra eru ótal fyrirspurnir í gegnum síma og tölvupóst. Því má áætla að upplýsingamiðstöðin hafi þjónað að minnsta kosti 6000 ferðamönnum það sem af er árinu.

Upplýsingamiðstöðin var opin í Nýheimum frá kl. 9-19 alla virka daga í sumar. Á kvöldin milli 19 og 22 var Upplýsingamiðstöðin opin á Jöklasýningu og einnig um helgar frá 10-22.

Ákveðið óhagræði hlýst af því að reka upplýsingamiðstöðina á tveimur stöðum bæði fyrir ferðamenn og rekstraraðila. Þess vegna hefur sú hugmynd vaknað að færa upplýsingamiðstöð alfarið á Jöklasýningu . Með því getur Jöklasýning og upplýsingamiðstöð stutt hvor aðra yfir sumartímann. Töluverðar umræður sköpuðust um hugmyndina og nýtingu á handmenntastofu í Vöruhúsi í tengslum við þá hugmynd. Rætt var um möguleika á samstarfi milli þjóðgarðs og Jöklasýningar.

Menningarmálanefnd leggur áherslu að haft verði samráð við Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu og grunnskólana í þessu sambandi.

9. Erindi frá bæjarráði

· Áherslur vegna stofnframlaga til menningarmála

Gerð grein fyrir vinnu sem farið hefur fram milli bæjarstjóra á Hornafirði, Fljótsdalshéraði, Fjarðabyggð og Seyðisfirði um stofnframlög til menningarmála.

Menningarmálanefnd leggur til að sveitarfélagið ráðstafi stofnframlögum til menningarmála til uppbyggingar Miklagarðs og tengi það við verkefnið Hafnarvík-Heppa með það að markmiði að skapa aðstöðu fyrir listamenn og/eða handverksfólk.

· Menntamálaráðuneytið,erindi um minjavörslu og menningararf, tölvubréf dags. 26. maí 2005. Til kynningar

10. Önnur mál

Guðlaug ræddi um aðgengi að Fundarhúsi Lónmanna. Þá gerði hún umhirðu lóðar og viðhald hússins að umtalsefni. Hjalti gerði grein fyrir því að hann hafi óskað eftir því við starfsmann Menningarmiðstöðvar að skipt verði um lása að húsinu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.10




Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica