Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 69
69. fundur
Menningarmálanefnd Hornafjarðar 69. fundur
Fundur haldin í menningarmálanefnd miðvikudaginn 25. maí.
Mætt voru: Hermann Hansson, Bryndís Hólmarsdóttir, Ágústína Halldórsdóttir, Guðlaug Hestnes og Þorbjörg Arnórsdótir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Ferð í Suðursveit og Öræfi.
Menningarmálanefnd lagði af stað frá Nýheimum kl. 10.00. Með í för voru Reynir og Örn Arnarsynir. Fyrst var haldið að Hala í Suðursveit þar sem Þorbjörg Arnórsdóttir og Fjölnir Torfason kynntu framkvæmdir og framtíðaráform á Þórbergssetri. Þaðan lá leiðin að Salthöfða í Öræfum þar sem Fornleifafélag Öræfa stendur fyrir uppgreftri á Bæ. Talið er að bærinn hafi lagst í eyði í Öræfajökulsgosinu árið 1362. Á Salthöfða tóku Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur og Ragnar Frank Kristjánsson formaður Fornleifafélags Öræfinga á móti hópnum, kynntu verkefnið, bæjarstæðið og ýmsar tilgátur og uppgötvanir sem hafa verið gerðar fram að þessu. Frá Salthöfða var haldið að Hrollaugsstöðum og fundað.
Fundur settur kl. 16.50.
Rætt um hugsanlega friðlýsingu á Salthöfða. Í samtali Bjarna F. Einarssonar við nefndarmenn kom fram að mikilvægt væri að friðlýsa svæðið. Menningarmálanefnd felur forstöðumanni að kanna þörfina og möguleika á slíkri friðlýsingu og hafa samráð við landeigendur, Fornleifavernd ríkisins, Fornleifafélag Öræfa og aðra hlutaðeigandi aðila.
2. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram fundargerð 68. fundar frá 11. maí til kynningar.
3. Norrænir dagar um land allt 25-27 október 2005.
Lagt fram erindi frá samstarfshópi um Norræna daga. Hjalti kynnti hugmyndir varðandi Norræna daga á Hornafirði. Til dæmis er hægt að gera bókmenntun góð skil á bókasafni. Menningarmálanefnd felur forstöðumanni að undirbúa þessa daga og telur mikilvægt að afla samstarfs við aðra aðila, t.d. skólana og Norræna félagið um kynningu á norrænni menningu..
4. Samstarfsamningur á milli Heppuskóla og Menningarmiðstöðvar
Lagt fram uppkast að samningi. Kom fram að hugmynd sé að víkka út samstarfið frá því sem nú er. Fundarmenn lýstu ánægju með hugmyndina. Menningarmálanefnd felur forstöðumanni að vinna áfram í málinu og hvetur til þess að slík verkefni verði innleidd.
5. Önnur mál
o Guðlaug ræddi um kynningar- og markaðsmál fyrir svæðið og hafði áhyggjur að þau mál væru ekki í eins góðu horfi og ákjósanlegt væri. Fundarmenn tóku undir orð Guðlaugar. Kom fram í máli fundarmanna að mikilvægt sé að ná góðum tengslum við svæðisútvarpið og miðla á landsvísu. Einnig kom fram að mikilvægt sé að sagðar verði fleiri fréttir af atvinnulífi á svæðinu. Töldu fundarmenn að starfsmenn sveitarfélagsins yrðu að vinna að þessum málum.
o Ágústína gerði viðhald á Akurey SF-52 að umtalsefni. Hún taldi þörf á að mála skipið og snyrta umhverfi hennar fyrir komandi humarhátíð. Hjalti gerði grein fyrir að haft hafi verið samband við skipasmíð um að veita ráðgjöf varðandi viðhald á skipinu.
o Þetta var síðasti fundur nefndarinnar á þessu vori. Formaður þakkaði nefndarmönnum fyrir starfið í vetur.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17.30


