Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 65
65. fundur
MenningarmálanefndHornafjarðar
65. f u n d u r
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í fundarsal Frumkvöðlaseturs í Nýheimum mánudaginn 9. febrúar kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson, Guðlag Hestnes, Ágústína Halldórsdóttir og Bryndís Hólmarsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson. Þorbjörg Arnórsdóttir boðaði forföll og ekki náðist í varamann fyrir hana.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram fundargerð frá 17. janúar til kynningar.
2. Stefnumótun í menningar og safnamálum
Lögð fram stefnumótun í menningar- og safnamálum Hornafjarðar 2000-2010. Töluverðar umræður sköpuðust um stefnumótunina og áhersluatriði sem þar eru sett fram. Kom fram að þetta væri fyrsta skrefið í endurskoðun á stefnunni.
Menningarmálanefnd felur starfsmanni að vinna greinargerð um stefnumótunina og skipuleggja vinnufund í apríl.
3. Heimsókn frá Djúpavogi
Gerð grein fyrir viðræðum við formann menningarmálanefndar á Djúpavogi. Kom fram að nákvæm dagsetning liggi ekki fyrir en stefnt er að því að menningarmálanefndin á Djúpavogi heimsæki Hornafjörð undir lok febrúar mánaðar.
4. Jöklasýning
Inga Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu málsins og næstu skrefum. Kom fram að hönnun sýningar sé að mestu lokið. Þá kom fram að fjármögnun sé komin á góðan skrið. Stefnt er að því að hafa kynningarfund um Jöklasýningu fyrir almenning og ferðaþjónustuaðila í mars.
5. Önnur mál
Gerð grein fyrir þeirri stöðu sem er í viðræðum ríkisins og Menningarráðs Austurlands um samning um menningarmál á Austurlandi. Kom fram að væntanlega verði gengið frá samningnum á næstu vikum.
Gerð grein fyrir viðræðum við útgefanda sögukorts og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu um útgáfu sögukorts fyrir svæðið. Kom fram að útgefandi sögukorts hefur í hyggju að kanna betur vilja sveitarfélaga á Austurlandi til þess að taka þátt í útgáfu á slíku korti. Ennfremur kom fram að útgefandi sé tilbúinn að skoða fleiri möguleika á framsetningu. Í viðræðum við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu komu fram efasemdir um ágæti slíks korts. Töldu þau að því ætti að velta fyrir sér hvort réttara væri að styðja við útgáfu sem þegar er unnið að í héraðinu, t.d. á gönguleiðarkortum.
Rætt um að gera aðkomuna í bæinn meira aðlaðandi. Lögð rík áhersla á nauðsyn þess að setja upp skilti við Lónafleggjara.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17.39


