Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 63
63. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í fundarsal Frumkvöðlaseturs í Nýheimum mánudaginn 17. janúar kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir og Bryndís Hólmarsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson og Gísli Sverrir Árnason. Guðlaug Hestnes og Þorbjörg Arnórsdóttir boðuðu forföll og ekki náðist í varamenn fyrir þær.
Formaður setti fund og bauð Hjalta Þór velkominn til starfa sem forstöðumann.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir:
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram fundargerð frá 8. desember til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2005 og uppgjör 2004
Lögð var fram samþykkt áætlun menningarmála. Einnig fyrstu drög að uppgjöri ársins 2004. Loks var kynnt uppgjör vegna innbrots í Gömlubúð en kostnaður vegna þess var 334.903 kr. Vátryggingafélag Íslands hefur þegar greitt tjónið. Innbrotið er hins vegar óupplýst ennþá.
3. Aðsókn að söfnum
Lögð var fram samantekt um aðsókn að þjónustu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar árið 2004. Meginatriði hennar eru:
Söfn
Gamlabúð (minjasafn og náttúrugripasafn) 3.222 gestir
Pakkhús (sjóminjasafn og handverkshús) 6.865 gestir
Jöklasýning og Svavarssalur 4.431 gestir
SAMTALS SÖFN 14.519 gestur
Sýningar (áætlun) 2.000 gestir
Tónleikar (áætlun) 2.000 gestir
Aðrir viðburðir (áætlun) 3.000 gestir
Bókasafn (áætlun - byggð á talningu) 19.800 gestir
Upplýsingamiðstöð ferðamanna (talning) 6.064 gestir
Héraðsskjalasafn (áætlun - byggð á talningu) 988 gestir
Sögustundir fyrir börn (talning) 556 gestir
Afþreying fyrir börn (sumarnámskeið) 124 gestir
ALLS 49.051 gestur
Varlega áætlað eru það því um eða yfir 50.000 manns sem nýta sér þjónustu og/eða starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar á ári eða nær 24 föld íbúatala sveitarfélagsins.
Bókaútlán 2004
Aðalsafn 26.403
Hafnarskóli 3.641
Nesjaskóli 1.900
Hrollaugsstaðir 314
Hofgarður 268
Samtals 32.525
4. Listvinasjóður Hornafjarðar
Lagður var fram rekstrarreikningur sjóðsins fyrir árið 2004 sem Inga Jónsdóttir umsjónarmaður hans hefur unnið. Tekjur sjóðsins námu 1,226.904 kr. Og gjöldin 1,108.753 kr. Eignir sjóðsins um áramót námu 408.201 kr.
5. Sögukort fyrir Austurland
Lagt fram bréf frá Rannsóknum og ráðgjöf dags. 23. nóvember 2004 sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar með bréfi dags. 13. desember 2003. Ennfremur lá fyrir tölvubréf Hjalta Þórs Vignissonar dags. 21. desember 2004 þar sem fram kemur umfjöllun atvinnumálanefndar um sama mál. Fyrir fundinum lá að mörg sveitarfélög á Austurlandi hafa hafnað þátttöku í sögukorti fyrir Austurland en áhugi er á útgáfu slíks korts á Suðurlandi.
Menningarmálanefnd samþykkir að kannaðir verði möguleikar á að gefa út sérstakt kort eða sambærilega upplýsingamiðlun fyrir Suðausturland í samvinnu við ferðaþjónustuaðila.
6. Samningur við Lionsklúbb Hornafjarðar um leigu á Pakkhúsi
Lagður fram til kynningar endurnýjaður samningur við Lionsklúbb Hornafjarðar dags. 10. desember 2004 um afnot af Pakkhúsinu til 30. apríl 2005.
7. Úthlutun styrkja
Lagt fram yfirlit frá bæjarskrifstofum um umsóknir um styrki til menningarstarfs í sveitarfélaginu. Farið var yfir fyrirliggjandi umsóknir og þær allar metnar gildar. Eftirfarandi tillaga var gerð um ráðstöfun þess fjár sem bæjarstjórn hefur ákveðið í styrki:
Karlakórinn Jökull 200.000 kr.
Kvennakór Hornafjarðar 200.000 kr.
Samkór Hornafjarðar 50.000 kr.
Gleðigjafar - kór aldraðra 50.000 kr.
Leikfélag Hornafjarðar 150.000 kr.
Leikhópurinn Lopi 50.000 kr.
Magnús J. Magnússon 25.000 kr.
Þorsteinn Sigurbergsson 50.000 kr.
Harmóníkufélag Hornafjarðar 75.000 kr.
Lúðrasveit Hornafjarðar 75.000 kr.
Listvinasjóður Hornafjarðar 200.000 kr.
Fornleifafélag Öræfa 175.000 kr.
Samtals 1,300.000 kr.
8. Menningarverðlaun 2004
Auglýst var eftir tilnefningum til verðlaunanna. Eftirfarandi tilnefningar bárust eða komu fram á fundinum:
- Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson fyrir starf að tónlistarmálum
- Heiðar Sigurðsson fyrir hljóðritun hljómdiska og dagskrá Hornfirska skemmtifélagsins
- Leikhópurinn Lopi fyrir markvisst leiklistaruppeldi ungmenn á aldrinum 13 - 17 ára.
- Gísli Sverrir Árnason fyrir öflugt starf og uppbyggingu í menningarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði, á Austurlandi og á öllu landinu með formennsku sinni í Menningarráði Austurlands og í stjórn Safnaráðs.
- Fornleifafélag Öræfa fyrir uppgröft við Salthöfða í Öræfum
- Torfhildur Hólm Torfadóttir fyrir ljóðabókina Glompu og tækifærisljóð og öflugt liðsinni í dagskrárgerð á skemmtunum í Suðursveit um árabil.
- Daníel Imsland og Hlynur Pálmason fyrir myndina Epíð.
Fundarmenn einhuga um að veita ?? menningarverðlaun árið 2004.
9. Önnur mál
Hermann gerði grein fyrir ferð fulltrúa sveitafélagsins til Reykjavíkur varðandi Jöklasýningu.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl.18.15


