Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningarmálanefndar 61
61. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Löngubúð á Djúpavogi miðvikudaginn 10. nóvember 2004 kl. 17:00.
Mætt voru: Hermann Hansson, Guðlaug Hestnes, Ágústína Halldórsdóttir og Bryndís Hólmarsdóttir. Þorbjörg Arnórsdóttir boðaði forföll.
Einnig Gísli Sverrir Árnason og Hjalti Þór Vignisson.
Um var að ræða sameiginlegan fund menningarmálanefndar Hornafjarðar og menningarmálanefndar Djúpavogs. Tilefni fundarins var að treysta tengsl á milli þessara aðila og ræða ýmis samstarfsverkefni sem til greina kemur að vinna að.
Fundinn sátu af hálfu heimamanna; Hrönn Jónsdóttir, Berglind Einarsdóttir, Erla Ingimundardóttir og Nína Jónsdóttir úr menningarmálanefnd Djúpavogs og Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri Djúpavogshrepps.
Fram kom á fundinum að öflugt menningarlíf er á báðum stöðunum en tiltölulega lítill samgangur milli þeirra. Var samþykkt að vinna að því á næstunni að kynna viðburði á báðum stöðunum svo fólki gæfist betra tækifæri til að sækja t.d. tónleika og sýningar milli staða. Jafnframt verður farið yfir þau verkefni sem helst kemur til greina að staðirnir vinni sameiginlega að á menningarsviðinu.
Djúpavogshreppur og Sveitarfélagið Hornafjörður eru samstarfssvæði á menningarsviði samkvæmt formlegu samstarfi í menningarmálum á Austurlandi.
Að loknum fundi í Löngubúð og kynningu á söfnunum þar var fugla- og steinasafnið skoðað, svo og Faktorshúsið.
Menningarmálanefnd Djúpavogs stefnir að því að endurgjalda heimsókn Hornfirðinga á nýju ári.
Farið var á bifreið Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Áður en haldið var heim snæddu Hornfirðingar kvöldverð á Hótel Framtíð.
Heimkoma um kl. 22:30.


