Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð Menningarmálanefndar 62

62. fundur

Fundur haldinn í menningarmálanefnd í fundarsal Frumkvöðlaseturs í Nýheimum

miðvikudaginn 8. desember 2004 kl. 17:00.

Mætt voru:        Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Guðlaug Hestnes og Ari Hannesson. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Hjalti Þór Vignisson.

Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir:

1.      Fundargerðir síðastu funda

Lagðar voru fram fundargerðir funda frá 27. október og 1. desember til kynningar og fundargerð frá Djúpavogsferð 10. nóvember til undirritunar.

2.      Fjárhagsáætlun 2005

Lögð voru fram drög að fjárhagsáætlun Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar fyrir árið 2005. Þar er gert ráð fyrir tekjum að upphæð 16,800.000 kr. en gjöldum að upphæð 46.180.000 kr. Nettóniðurstaða áætlunarinnar er því 29.380.000 kr.

Menningarmálanefnd samþykkir þessi drög að fjárhagsáætlun. Lögð er áhersla á að fjármunir fáist í viðhald Gömlubúðar og Fundarhúss Lónmanna. Ennfremur er afar brýnt að fá fjárveitingu í það að bæta úr öryggismálum safna.

3.      Jöklasetur

Formaður gerði grein fyrir undirbúningi nýrrar sýningar, fjármögnun o.fl. þáttum. Leitað hefur verið til fjölmargra aðila um aðkomu að málinu og hafa ýmsir nú þegar heitið faglegum stuðningi. Fjárveiting á fjárlögum næsta árs hljóðar upp á 5 millj. kr. Enn er vonast eftir að náist samningur við ríkisvaldið um frekari fjármögnun á næstu árum. Fram kom á málþingi í Nýheimum í dag að Vegagerðin hefur ákveðið að leggja Jöklasetri til 5 millj. kr. styrk á næstu þremur árum. Gerður hefur verið samningur við Björn G. Björnsson um hönnun nýrrar sýningar.

4.      Öryggismál safna

Lagðar voru fram upplýsingar um kaupverð öryggiskerfa í Gömlubúð, Pakkhúsi, Miklagarði, Fundarhúsi og Vöruhúsi skv. tilboði frá Securitas. Tilboð bárust ekki frá öðrum. Óskað hefur verið eftir tilboðum í uppsetningu kerfanna. Málið hefur verið kynnt fyrir bæjarstjóra, framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs og fulltrúa VÍS. Menningarmálanefnd telur að Gamlabúð og Pakkhús eigi að njóta forgangs í þessu máli, öryggismál í Vöruhúsi eigi að skoða í tengslum við uppbyggingu Jöklasýningar í samráði við eiganda hússins. Þá bendir nefndin bæjaryfirvöldum á að leyfa ekki afnot af Miklagarði sem geti skapað húsinu hættu.

5.      Samningar

Lagðir voru fram samningar Menningarmiðstöðvar við Hafnarskóla og Heppuskóla dagsettir 1. desember 2004. Einnig samningur Garðeyjar ehf., Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Útvegsmannafélags Hornafjarðar, Vökuls-Stéttarfélags og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um varðveislu og eignarhald á Akurey SF 52 dagsettur 4. desember 2004. Sagt var frá 400.000 kr. styrk frá Atvinnuþróunarsjóði Austurlands til áætlanagerðar varðandi gamla hafnarsvæðið, Hafnarvík-Heppu.

6.      Menningarverðlaun 2004

Lagt fram yfirlit um verðlaunahafa frá 1995 og reglur um verðlaunin. Umræða varð um málið og ákveðið að auglýsa eftir tilnefningum frá almenningi en ákvörðun verður tekin í janúar.

7.      Önnur mál

·         Lagt fram tölvubréf um Barnamenningarsjóð sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar. Starfsmönnum falið að svara erindinu.

·         Sagt var frá viðræðum Menningarráðs Austurlands og SSA við menntamálaráðu-neytið um nýjan samning um menningarmál.

·         Lýst var vonbrigðum með umgengni við anddyri Nýheima, aðallega vegna reykinga.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19.00

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica