Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð menningarmálanefndar 60

60. fundur

Fundur haldinn í menningarmálanefnd í fundarsal Frumkvöðlaseturs í Nýheimum

miðvikudaginn 27. október 2004 kl. 16:00.

Mætt voru:  Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Guðlaug Hestnes og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason.

Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir:

 

1.      Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð síðasta fundar, 15. september, lögð fram til kynningar.

2.      Öryggismál safna

Tilefni umræðu um öryggismál var innbrot í Gömlubúð 24. sept. sl. Lögð voru fram gögn um skemmdir á húsnæði og munum. Jón Stefán Friðriksson mætti á fundinn til að gera grein fyrir tillögum sem hann hefur unnið að beiðni forstöðumanns um ástand og úrbætur í öryggismálum safnanna. Fór sú vinna fram að höfðu samráði við bæjarstjóra og VÍS. Jón lagði fram greinargerð sem hann hefur unnið varðandi Gömlubúð,Vöruhús, Pakkhús, Fundarhús Lónmanna, Nýheima og verbúð í Miklagarði. Í greinargerðinni komu fram mismunandi tillögur eftir húsum og von er á verðtilboðum frá þremur aðilum í uppsetningu og rekstur ýmissa kerfa. Í Nýheimum er þó engra aðgerða þörf því þar eru ný, fullkomin kerfi. Málið verður tekið til umræðu á ný þegar tilboð hafa borist.

3.      Staða bókhalds 27. október 2004

Kynnt var yfirlit frá fjármálastjóra þar sem fram kemur að ráðstafað hefur verið 87,36% af fjárheimildum stofnunarinnar miðað við endurskoðaða fjárhagsáætlun. Hefur rekstur upplýsingamiðstöðvar þá verið færður inn í bókhald Menningarmiðstöðvar. Forstöðumaður fór yfir hvernig útlitið væri til áramóta. Er ekki annað að sjá en að fjárhagsáætlun muni standast.

4.      Fjárhagsáætlun 2005

Stefnt var að því að leggja fram fyrstu drög á fundinum en ekki vannst tími til þess. Forstöðumaður benti þó á að endurskoðuð fjárhagsáætlun 2004 ætti að gefa vísbendingu um fjárhagsáætlun 2005 að óbreyttum rekstri.

5.      Ráðstöfun stofnfjármuna

Kynnt var staða málsins, kaup á búnaði og undirbúningur breytinga og viðgerða á Mánagarði og Sindrabæ. Einnig var rætt um hugsanlegt framhald á stofnstyrkjum og samþykkt að leggja þá tillögu sem til umræðu var fram við bæjarráð. Einnig var farið yfir áherslur varðandi endurnýjun menningarsamnings sveitarfélaganna á Austurlandi og ríkisins sem nú er unnið að.

Menningarmálanefnd lýsir yfir eindregnum stuðningi sínum við að samið verði á ný við menntamálaráðuneytið um menningarmál á Austurlandi og stuðning við menningarmiðstöðvarnar fjórar, bæði stofnstyrki og rekstrarstyrki.

6.      Fundur með forsætisráðherra

Lagt var fram minnisblað frá fundinum sem haldinn var í Nýheimum 16. október sl. Þar voru rædd fjögur verkefni á sviði menningarmála: Jöklasetur, Þórbergssetur, Hafnarvík-Heppa og menningarsamningur fyrir Austurland. Fundarmenn fögnuðu þessum fundi og þeim metnaðarfullu áformum sem felast í verkefnunum.

7.      Tónleikar FÍT

Lagt fram bréf frá Félagi íslenskra tónlistarmanna með boði um ýmsa tónleika í vetur. Samþykkt að Inga Jónsdóttir og Guðlaug Hestnes hefðu með val á tónleikum að gera.

8.      Starfsáætlun menningarmálanefndar

Lögð fram drög að funda- og verkefnaáætlun nefndarinnar í vetur.

9.      Djúpavogsferð

Ákveðið hefur verið að sækja menningarmálanefnd Djúpavogs heim 10. nóvember n.k. Farið var yfir skipulag ferðarinnar.

10.  Önnur mál

·  Kynnt voru drög að samningi um eignarhald og varðveislu Akureyjar SF 52 sem unnin eru í samráði við eigendur skipsins, bæjarstjóra og Útvegsmannafélag Hornafjarðar. Menningarmálanefnd lýsti yfir ánægju með samninginn og samþykkti hann fyrir sitt leyti.

·  Sagt var frá því að Sigurður Einarsson, sem ættaður er af Mýrum, hefði gefið Menningarmiðstöðinni vel á þriðja hundrað málverka eftir sjálfan sig. Menningarmálanefnd færir Sigurði hjartans þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.

·  Guðlaug óskaði eftir því að kynningarskilti um Höfn sem verið hefur við Lónsafleggjara yrði sett upp að nýju.

·  Guðlaug sagði frá mikilli hrifningu Sigurðar Rúnars Jónssonar á hljómburði í Nýheimum, húsið væri eitt það besta til hjóðupptöku á landinu og hljófærið einnig frábært.

·  Formaður kynnti bréf forstöðumanns dags. 12. október 2004 þar sem hann segir upp starfi sínu.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:25




Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica