Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningarmálanefndar 59
59. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Pakkhúsinu miðvikudaginn 15. september 2004 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir:
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar, 23. júní, til kynningar.
2. Mikligarður. Hafnarvík - Heppa
Lögð var fram ástandslýsing og kostnaðaráætlun vegna hugsanlegra endurbóta á Miklagarði. Samkvæmt útreikningum tæknideildar er kostnaður við endurbætur hússins að utan áætlaðar 21,8 millj. kr. Lögð hefur verið inn umsókn hjá Atvinnuþróunarsjóði Austurlands vegna frekari áætlanagerðar við endurbyggingu gamla hafnarsvæðisins, elsta kjarna byggðarinnar á Höfn. Húsafriðunarsjóður hefur styrkt verkefnið lítillega og lýst yfir velvilja sínum til verkefnisins. Kynnt var tillaga sem samþykkt var á aðalfundi KASK á síðasta ári um viðræður félagsins við bæjarstjórn um varðveislu á Kaupfélagshúsinu, Hafnarbraut 2. Einnig var sýnd tillaga Páls V. Bjarnasonar arkitekts að endurbyggingu hússins. Í umræðu var einnig minnt á Akurey og varðveislu hennar.
Samþykkt var að stefna að gerð langtíma áætlunar um uppbyggingu og varðveislu einstakra bygginga og svæðisins í heild.
3. Átta mánaða staða
Lögð var fram útskrift úr bókhaldi m.v. 31. ágúst 2004 en unnið er að átta mánaða uppgjöri á bæjarskrifstofum. Lögð var áhersla á að fá sem réttasta mynd af stöðunni á næsta fundi og uppgjör fyrir upplýsingamiðstöðina. Lýst var ánægju með hvernig starfsemi upplýsingamiðstöðvar tókst í sumar.
4. Gjöf Karls Ómars Jónssonar og fjölskyldu
Lagt var fram gjafabréf Karls Ómars Jónssonar og Ólafar Stefánsdóttur dags. 4. júlí 2004 en þann dag afhentu þau ýmis gögn um ævi og störf Svavars Guðnasonar listmálara. Fram kom að bæjarstjóri hefði flutt þeim hjónum innilegar þakkir frá bæjarráði vegna ómetanlegs starfs þeirra fyrir byggðarlagið. Menningarmálanefnd tók undir þær þakkir.
5. Skýrsla frá FÍT
Lagt var fram tölvubréf frá FÍT sem innihélt skýrslu um landsbyggðatónleika 2003-2004.
6. Húsaleigusamningur
Kynntur var húsaleigusamningur við KASK dags. 31. ágúst 2004 um 79,2 ferm. geymsluhúsnæði í kjallara Vöruhúss. Einnig var lagt fram minnisblað um geymslumál Menningarmiðstöðvar og tilboð kaupfélagsins um frekari leigu í kjallaranum. Forstöðumaður áréttaði mikilvægi þess fyrir söfn að hafa aðgang að góðum geymslum.
7. ÚFFF ? málþing
Dagskrá þingsins, sem haldið var 8. sept., var lögð fram til kynningar. Það tókst vel, var samstarfsverkefni margra aðila og miðaði að því að efla framtak og frumkvæði ungs fólks á Hornafirði.
8. Aðsókn að söfnum
Nákvæmar tölur um aðsókn eru ekki tiltækar þar sem söfnin voru opin til 12. september. Almennt séð er þó hægt að fullyrða að aðsókn hafi verið ágæt en nákvæmar tölur verða lagðar fram á næsta fundi. Forstöðumaður kynnti yfirlit þar sem fram kemur að ekki færri en 30.000 manns nýti sér þjónustu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar á hverju ári.
9. Til kynningar
? Bréf bæjarráðs um launað námsleyfi forstöðumanns
? Uppsögn Tetra Íslands á leigu fyrir loftnet á vatnstanki
? Bréf Mats Wibe Lund með ósk um samstarf við söfn
? Boð um þátttöku í ráðstefnu í Lofoten 22. ? 24. september.
10. Önnur mál
? Bryndís spurði um auglýsingar á vatnstankinum á Fiskhól. Það mál er í vinnslu. Vakin var athygli á möguleikum þess að útbúa útsýnisstað á vatnstanknum. Einnig vakin athygli á að lagfæri þurfi nánasta umhverfi tanksins og aðkomu að honum.
? Hermann sagði frá ýmsum menningarhúsum og sögustöðum sem hann skoðaði í Vesturheimi.
? Þorbjörg ræddi um möguleika á því að láta gera eftirmynd af styttunni af Ólafi helga úr Kálfafellsstaðarkirkju sem varðveitt er á Þjóðminjasafni og er til sýnis á nýuppgerðu safni.
Fleira ekki tekið fyrir
Fundi slitið kl. 18:30


