Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð Menningamálanefndar 40

40. fundur

Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, miðvikudaginn 11. desember  2002  kl. 16:00.

Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Heimir Örn Heiðarsson, Ágústína Halldórsdóttir og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.

 

Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :

 

1. Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir.

 

2. Menningarverðlaun 2002. Reglur til endurskoðunar

Nefndarmenn voru sammála um að breyta reglunum á þann hátt að heimilt verði að auglýsa eftir tilnefningum. Forstöðumanni var falið að auglýsa tilnefninguna. Samþykkt að skilafrestur tillagna verði til 10. janúar 2003.

 

3. Umsóknir um styrki

Menningarmálanefnd kom sér saman um ákveðna tillögu að úthlutun styrkja. Nefndin vísar ákvörðun um styrkveitingu til Snorraverkefnisins til bæjarráðs.  Frestað er til næsta fundar að birta úthlutunartillöguna.

 

4. Þórbergssetur

Þorbjörg sagði frá stöðunni í undirbúningi Þórbergsseturs að Hala í Suðursveit en verkefnið hefur fengið vilyrði fyrir 5 milljón kr. fjárveitingu á fjárlögum 2003 auk þess sem margir hafa sýnt áhuga á að koma að verkefninu sem samstarfs- og/eða styrktaraðilar.  Menningarmiðstöðin er tilbúin til þess að verða stofnaðili að stofnuninni og að tilnefna þá mann í undirbúningsnefndina jafnframt því að vera stuðningsaðili stofnunarinnar. Nefndin er þó ekki tilbúin að tilgreina stofnframlag nú. Gísli Sverrir Árnason er tilnefndur fulltrúi nefndarinnar í undirbúningsnefnd.  Stefnt er að ráðstefnu um Þórberg Þórðarson á vordögum og mun Gísli Sverrir koma að undirbúningi fyrir hönd menningamálanefndar.

5. Jöklasetur

Gísli Sverrir fór yfir stöðuna varðandi undirbúning Jöklaseturs. Menningarmálanefnd telur æskilegt að skipaður verði vinnuhópur sem heldur utan um áframhaldandi vinnu við stofnun setursins. Nefndin tekur undir tillögur Ingu Jónsdóttur varðandi áframhaldandi vinnu m.a. úttekt arkitekta á húsnæðismálum og gerð viðskipta og markaðsáætlunar. Hermann Hansson er tilbúinn til að koma að þessari vinnu fyrir hönd nefndarinnar.

 

6. Listvinasjóður Hornafjarðar

Farið var yfir  skipulagsskrá sjóðsins og lögð voru fram gögn um uppgjör hans. Menningarmálanefnd sammála um að fara á komandi ári í átak til að safna fleiri stuðningsaðilum Listvinasjóðsins en fjöldi þeirra nú er 39.

 

7. Bréf frá Guðjóni Ketilssyni myndlistarmanni

Menningarmálanefnd þyggur þessa rausnalegu gjöf með þökkum og mun hafa samráð við listamanninn um staðsetningu og uppsetningu á verksinu.

 

8. Samningar

Meðfylgjandi eru tveir samningar milli Menningarmiðstöðvar og Hátíðni dag. 26. nóv. 2002

a) um sölu auglýsinga í Skaftfelling

b) um sölu auglýsinga á vatnstankinn á Fiskhól

Gísli Sverrir kynnti ofangreinda samninga.

 

9. Önnur mál

a) Samstarf við Borgarleikhús. Meðf. úr tölvubréfum

Fram kom að Gísli Sverrir er tengiliður sveitarfélagsins við Borgarleikhúsið.

b) Bréf frá Önnu Hildi Hildibrandsdóttur um tónleika næsta sumar

Menningarmálanefnd sér sér ekki fært að styrkja þessa tónleika með beinu fjárframlagi.

Styrkbeiðni frá þorrablótsnefnd í Nesjum til greiðslu húsaleigu í Mánagarði. Menningarmálanefnd hafnar beiðninni.

Hermann lagði fram tillögu um að Menningarmiðstöð gangist fyrir því að haldið verði ættfræðinámskeiði í húsnæði Nýheima. Gísla Sverri falið að skoða málið.

Gísli Sverrir fór yfir framlög á fjárlögum ríkisins til menningarmála á Austurlandi 2003 en samtals nemur upphæðin 103 milljónum og af því koma 22 milljónir til Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Gísli Sverrir sagði frá boði um að nóbelsskáldið Seamus Heaney og sekkjapípuleikarinn Liam O´Flynn heimsækji okkur vorið 2004. Ljóst er að talsverður kostnaður fylgir því að þiggja boðið. Gísla Sverri falið að skoða málið.

Guðlaug sagði frá ánægju þeirra Signýar Sæmundsdóttur og þóru Sæmundsdóttur með aðstöðu til hljómleikahalds í Nýheimum og hljóðfærið í húsinu.

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:35


Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica