Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningarmálanefndar 57
57. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í fundarsal Frumkvöðlaseturs í Nýheimum
miðvikudaginn 12. maí 2004 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir, Grétar M. Þorkelsson, Guðlaug Hestnes og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir:
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar, 14. apríl, til kynningar.
2. Stofnframlög til menningarmiðstöðvar
Kynnt var staða undirbúningsvinnu en Gísli Sverrir Árnason, Jóhann Morávek, Haukur H. Þorvaldsson og Magnús J. Magnússon hafa unnið að tillögugerð. Leitað hefur verið tilboða í búnað og breytingar en vegna manneklu hjá tæknideild bæjarins hefur ekki verið hægt að fá faglega úttekt á kostnaði við ýmsa viðhaldsþætti. Fjárveiting til Mánagarðs og Sindrabæjar úr viðhaldssjóði liggur ekki fyrir en æskilegt er að þaðan kæmu peningar til að vinna að viðhaldi á þessum húsum samfara kaupum og uppsetningu á stofnbúnaði. Þetta verður rætt nánar við bæjaryfirvöld. Unnið verður að endanlegri tillögugerð, búnaður skoðaður og valinn og málið lagt fyrir menningarmálanefnd til ákvörðunar á næsta fundi sem ráðgerður er seinni part júní.
3. Skáldið og sekkjapípuleikarinn 22. maí
Gerð var grein fyrir undirbúningi þessa viðburðar en um er að ræða Nóbelsskáldið Seamus Heaney og írska sekkjapípuleikarann Liam O´Flynn sem flytja írska þjóðlagadagskrá með tengingu við verk skáldsins. Þetta er liður í Listahátíð í Reykjavík og er frumsýning á Íslandi á þessum dagskrárlið. Auk Listahátíðar eru Menningarráð Austurlands, HPsynir og Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis meðal stuðningsaðila verkefnisins.
4. Jöklasetur
Sagt var frá undirbúningi að nýrri sýningu í Vöruhúsinu en Björn G. Björnsson sýningarhönnuður hefur verið ráðinn til ráðgjafar um breytingar á sýningunni nú í vor og endurnýjun sýningarinnar fyrir sumaropnun 2005. Gerður hefur verið húsaleigusamningur við Skálatinda ehf. um aðstöðu fyrir jöklasýningu í Vöruhúsinu. Er samningurinn til 10 ára. Unnið er áfram að undirbúningi þess að stofna sjálfseignarstofnun um Jöklasetur.
Undir þessum lið var einnig sagt frá undirbúningi að opnun upplýsingamiðstöðvar í Nýheimum. Guðrún Ingimundardóttir og Inga Jónsdóttir munu leiða starfsemi hennar ásamt jöklasýningu en jafnframt hefur Margrét Kristinsdóttir verið ráðin til starfa í sumar við þessa tvo þætti í starfsemi Menningarmiðstöðvar.
5. Samningar
Kynntur var bráðabirgðasamningur við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu dags. 26. apríl 2004.
6. Ársreikningar 2003
Lagðar voru fram niðurstöðutölur menningarmála úr ársreikningum bæjarfélagsins.
7. Yfirlit um rekstur menningarmála
Lagt var fram yfirlit um stöðu menningarmála dags. 12. maí 2004. Ljóst er að vegna umfangsmikillar starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar, aukinna verkefna og þrengri fjárhagsramma þarf að standa verulega í ístöðunum á þessu ári.
8. Menningarráð Austurlands
Gerð var grein fyrir aðalfundi ráðsins 4. maí sl. og undirbúningi að endurnýjun menningarsamnings við menntamálaráðuneytið. Lagður var fram til kynningar núgildandi samningur sveitarfélaganna við ríkið. Menningarmálanefnd telur mikilvægt að endurnýja menningarsamninginn og fjárhæðir hans hækki talsvert frá núverandi samningi. Jafnframt áréttar nefndin að stofnframlög til menningarmiðstöðva á Austurlandi verði hækkuð frá því sem nú þegar hefur verið ákveðið og vísar í því sambandi til samninga um aðkomu ríkisins að uppbyggingu menningarhúsa á Akureyri, Ísafirði og Vestmannaeyjum.
Þorbjörg Arnórsdóttir óskaði eftir að tekið yrði saman yfirlit um opinberan stuðning við menningarstarfsemi í sveitarfélaginu og umfang þess reksturs. Tók nefndin undir það og fól forstöðumanni Menningarmiðstöðvar að leggja slíkt yfirlit, er næði til þriggja ára, fram á næsta fundi.
9. Tilnefning í undirbúningshóp vegna stofnunar Náttúrustofu Suðausturlands
Lagt var fram bréf bæjarráðs dags. 23. apríl 2004 þar sem óskað er eftir að menningarmálanefnd tilnefni, fyrir hönd Jöklaseturs, einn fulltrúa í undirbúningshóp til stofnunar Náttúrustofu Suðausturlands. Nefndin tilnefnir Ingu Jónsdóttur sem fulltrúa Jöklaseturs í starfshópinn.
10. Námsleyfi forstöðumanns
Fram var lagt bréf Gísla Sverris Árnasonar, forstöðumanns Menningarmiðstöðvarinnar, dags. 6. maí 2004, þar sem hann sækir um 9 mánaða námsleyfi á launum í samræmi við heimildir í grein 8.2. í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga. Námsleyfið væri á tímabilinu 1.september 2004 til 31.maí 2005, en Gísli hyggst nota það til að ljúka meistaranámi í opinberri stjórnsýslu, sem hann leggur stund á við Háskóla Íslands.
Óskað var umsagnar Menningarmálanefndar um málið. Gísli Sverrir vék af fundi eftir að hafa kynnt erindi sitt og svarað spurningum.
Svohljóðandi bókun var samþykkt:
Menningarmálanefnd telur mikilvægt að starfsmenn sveitarfélagsins eigi þess kost að stunda endurmenntun/símenntun og auka þannig eða viðhalda hæfni sinni til starfa í þágu sveitarfélagsins og byggðarinnar.
Í þessu sambandi vekur nefndin athygli á eftirfarandi:
• Mikilvægt er að settar verði almennar reglur sem gilda um námsleyfi (launuð eða ólaunuð) starfsmanna sveitarfélagsins og stofnana þess.
• Meta þarf hver viðbótarkostnaður verður, ef námsleyfið verður veitt og samþykktar verði viðeigandi fjárveitingar í því sambandi.
• Nauðsynlegt er að ganga með formlegum hætti frá skipan staðgengils í starf forstöðumanns Menningarmiðstöðvarinnar meðan á námsleyfinu stendur.
• Ákveða þarf hvaða skilyrði verða sett varðandi lágmarksstarfstíma eftir að námsleyfi lýkur.
11. Önnur mál
Kynnt voru viðbrögð Kaupfélags Austur-Skaftfellinga við óformlegri fyrirspurn Menningarmiðstöðvar um leigu á kjallara Vöruhúss fyrir geymslur.
Lagður var fram til kynningar bæklingur um Nýheima og starfsemina þar.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl. 18:30


