Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð Menningarmálanefndar 56

56. fundur

FUNDARGERÐ

Fundur haldinn í menningarmálanefnd í fundarsal Frumkvöðlaseturs í Nýheimum
miðvikudaginn 14. apríl 2004 kl. 16:00.

Mætt voru: Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Guðlaug Hestnes og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason.

Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir:

Dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar, 16. mars, til kynningar.

Bókun vegna umræðna um kaup á bifreið fyrir Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
Í tilefni af umræðum Bæjarráðs Hornafjarðar á 245. fundi þann 25. mars sl. og Bæjarstjórnar Hornafjarðar á 72. fundi þann 1. apríl sl. vill menningarmálanefnd að eftirfarandi komi fram:

• Á 55. fundi Menningarmálanefndar Hornafjarðar þann 16.mars 2004 gerði forstöðumaður nefndinni grein fyrir því undir dagskrárliðnum önnur mál, að keypt hefði verið ný bifreið fyrir stofnunina í stað eldri bifreiðar sem væri orðin ónýt. Nefndarmenn í Menningarmálanefnd gerðu ekki athugasemdir við þessa ákvörðun.
• Áður en til kaupanna kom leitaði forstöðumaður eftir samþykki framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs (í fjarveru bæjarstjóra) fyrir kaupunum og lá það fyrir 11. mars.
• Kaupverð hinnar nýju bifreiðar kr. 1.350.000.- var greitt þannig að kr.350.000 – voru teknar úr sjóðum Menningarmiðstöðvarinnar, en kr.1.000.000.- fjármögnuð þannig að þrír starfsmenn stofnunarinnar gáfu eftir af umsömdum ökutækjastyrk sínum, kr. 30.000.- á mánuði í 36 mánuði til þess að greiða bifreiðina, en hún var keypt með afborgunarkjörum.
• Mikilvægt er að undirstrika þann hátt sem er á fjármögnun kaupanna og að rekstrargjöld stofnunarinnar eru í reynd lækkuð um eina milljón á næstu þremur árum til að fjármagna þessi viðskipti, auk þess sem ætla má að notagildi bifreiðarinnar umfram eldri bifreið muni leiða til beins rekstrarsparnaðar í náinni framtíð.
• Við bifreiðakaupin var stuðst við reglur um bifreiðamál sveitarfélagsins sem bæjarráð setti 8. janúar 2004, en með tilvísun til 1. greinar þeirra er ljóst að heppilegra hefði verið að leita heimildar bæjarráðs fyrir þessari ráðstöfun áður en til framkvæmda kom, þrátt fyrir ákvæði 7. greinar þeirra.

2. Stofnframlög til menningarmiðstöðvar
Lagt var fram bréf bæjarráðs dags. 17. mars 2004. Einnig minnisblað GSÁ og bréf til bæjarráðs dags. 16. október 2003. Athygli var vakin á því að til ráðstöfunar eru 14 milljónir kr.
Gestir undir þessum lið voru Magnús J. Magnússon frá Leikfélagi Hornafjarðar og Leikhópi Mána, Jóhann Morávek frá Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og Haukur H. Þorvaldsson frá Þrykkjunni og Sindrabæ en þeir voru boðaðir á fundinn til þess að gera grein fyrir sínum áherslum.
Með úrbótum á eldri sal Mánagarðs gæti hann ágætlega þjónað hlutverki leikhúss. Í Sindrabæ var bent á lagfæringar á kvikmyndasal í þessu sambandi þannig að hann geti einnig nýst sem tónlistar-, kennslu og ráðstefnusalur. Einnig var bent á ýmsar nauðsynlegar lagfæringar og breytingar á aðstöðu félagsmiðstöðvar.
Samþykkt var að óska eftir því við þá Hauk, Jóhann, Magnús, Helga Má og Gísla Sverri að taka sæti í starfshópi til að vinna nánari áætlanir um viðgerðir og kaup á búnaði og leggja fyrir nefndina sem fyrst. Gísla Sverrir falið að leiða þá vinnu.

3. Styrkúthlutanir
Lagt var fram yfirlit um úthlutanir úr Húsafriðunarsjóði og Menningarborgarsjóði. Menningarmiðstöð Hornafjarðar fékk 250.000 kr. styrk í áframhaldandi undirbúningsvinnu við verkefnið Hafnarvík-Heppa úr Húsafriðunarsjóði.
Jöklasýningin er aðili að samstarfi sex safna sem fær 800.000 kr. styrk úr Menningarborgarsjóði til verkefnisins Sex pör, stefnumót minja og lista umhverfis landið, samstarfsverkefni 6 listamanna og 6 safna. Þaðan fá einnig Þórbergssetur 500.000 kr. og Fuglaathugunarstöð 200.000 kr.

4. Önnur mál
Guðlaug minntist á franska óperu sem á að frumflytja á Fáskrúðsfirði í sumar. Sagan í óperunni á rætur að rekja til strandanna á Horni 1873. Í boði er að fá óperuna hingað 24. júlí. Samþykkt að skoða það með velvilja.
Þorbjörg sagði frá fundi um NPP verkefnið varðandi Vatnajökulsþjóðgarð, en hann var haldinn í Öræfum nýlega. Fundinn sátu fulltrúar úr Austur- og Vestur-Skaftafellssýslu. Unnið er að mörgum verkefnum í þessum sýslum báðum sem snúa að náttúru, menningu og sögu og geta orðið verulegt aðdráttarafl þegar fram líða stundir. Ekki kom fram ótti um samkeppni milli þessara verkefna, miklu frekar að ýmsir möguleikar væru á samstarfi milli þeirra.

Fundi slitið kl. 18:00


Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica