Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 81
81. fundur
Fundur í húsnæðisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 21. apríl 2008 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Guðrún Ingimundardóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, Einar Karlsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir,
Fundargerð ritaði: Ásta H. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
1. 200804102 - Leiguíbúðir Drög að ársreikning 2007
Ásta lagði fram drög að ársreikningi 2007, þar kemur fram að tap er 1.106 þús.kr. Handbært fé frá rekstri 14,3
Húsnæðisnefnd lýsir ánægju með rekstur kaupleiguíbúða og vísar ársreikningum til bæjarráðs.
200709024 - Úthlutun framlaga vegna sölu félagslegra íbúða
Bréf frá Varasjóði áður afgreitt.
2. 200804079 - Fyrirspurn húsnæðisnefndar vegna húsnæðismála.
Svar frá félagsmálastjóra varðandi þörf á félagslegu húsnæði dags. 16. apríl sl. Húsnæðisnefnd ræddi um auknar húsaleigubætur einnig að kanna kosti á upptöku sérstakra húsleigubóta og samhliða endurskoðun á leigukjörum kaupleigukerfisins í átt að markaðsleigu. Starfsmann falið að afla frekari upplýsinga.
3. 200804044 - Félagslegar íbúðir
Bréf frá félagsmálastjóra varðandi umsögn um úthlutun á íbúð að Víkurbraut 26
4. 200804043 - Félagslegar íbúðirBréf frá félagsmálastjóra varðandi umsögn um úthlutun á íbúð að Víkurbraut 26
Íbúð að Víkurbraut 26 er úthlutað
5. 200804105 - Lausar íbúðir
Þrjár íbúðir losna nú 1. júní
Húsnæðisnefnd frestar úthlutun.
6. 200804104 - Umsóknir um leiguíbúðir
Biðlist um íbúðir er kynntur. Umsóknir eru 15.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00


