Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 74
74. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 19. mars 2007 kl. 16:15.
Mættar voru: Guðrún Ingimundardóttir og Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir
Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir.
1. Úthlutun íbúða
- Sandbakkavegur 6 íbúð 0101 2ja herb. Úthlutun færð í trúnaðarbók.
- Silfurbraut 4 0301silfur 4ra herb. Úthlutun færð í trúnaðarbók
- Silfurbraut 4 0202 4ra herb. Úthlutun færð í trúnaðarbók
- Silfurbraut 2 0201 3ja. herb. Úthlutun færð í trúnaðarbók
- Bjarnahól 2 2ja herb. Úthlutun færð í trúnaðarbók
Ásta benti á að kaupleigukerfið sé að innleysa eina tveggja herbergja íbúð að Bjarnahól 2 og að nú séu aðeins 2 innlausnaríbúðir í kerfinu.
2. Staða um áramót
Ásta lagði fram nýtt rekstraryfirlit og skv. því er hagnaður um 1,5 m.kr. en uppfærsla langtímalána er um 20,7 m.kr. en endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir.
Húsnæðisnefnd lýsir ánægju yfir því að rekstrarstaðan sé góð og leggur til að haldið verði áfram að fækka íbúðum í kerfinu.
3. Önnur mál
Ásta upplýsti að framlag Varasjóðs húsnæðismála vegna sölu á Víkurbraut 11 og 13 er um 16,3 m.kr. og að langtímaskuldir kaupleigukerfisins lækka vegna þessa um 57,4 m.kr. Einnig sagði hún að rekstrarframlag varasjóðsins vegna rekstur kaupleigukerfisins 2006 eru rúml. 4,5 m.kr.
Fundi slitið kl: 17:00


