Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 73
73. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 16. janúar 2007 kl. 16:15.
Mættar voru: Guðrún Ingimundardóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir og Einar Karlsson. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir.
Dagskrá:
1. Úthlutun íbúða
- Víkurbraut 26 íbúð 0102 íbúð fyrir aldraða. Úthlutun skv. tillögu þjónustuhóps aldraðra og úthlutunin færð í trúnaðarbók.
Húsnæðisnefnd er sammála um að úthlutanir verði áfram færðar í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
Ásta upplýsti að bæjarráð samþykkti kauptilboð sem kom í Víkurbraut 11 og Víkurbraut 13.
Rætt var um stöðu málsins og lýsir húsnæðisnefnd ánægju með kauptilboðið ef af verður.
Fundi slitið kl: 17:00


