Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 72
72. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 12. desember 2006 kl. 16:15.
Mættar voru: Guðrún Ingimundardóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir og Einar Karlsson. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir.
1. Úthlutun íbúða
- Sandbakkavegur 3 íbúð 0201 3ja herbergja 79,7 fm. Úthlutun færð í trúnaðarbók
- Víkurbraut 11 íbúð 0102 3ja herbergja 84,3 fm.. Úthlutun færð í trúnaðarbók
2. Önnur mál
Húsnæðisnefnd leggur til að hússjóður verði innheimtur með húsaleigu.
Rætt var um útistandandi húsaleiguskuldir og sagði Ásta að staðan væri góð.
Fundi slitið kl: 16:45


