Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 71
71. fundur
Mættar voru: Guðrún Ingimundardóttir og Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun 2007
Ásta fór yfir fjárhagsáætlun 2007, þar kemur fram að rekstrarniðurstaða er halli upp á um 7,4 m.kr. en gert er ráð fyrir 14,3 m.kr. í reiknaðar verðbætur. Veltufé frá rekstri er því um 7 m.kr. Afborganir langtímalána eru áætluð um 8,7 m.kr. Húsnæðisnefnd samþykkir framlagða áætlun og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
2. Úthlutun íbúða
- Sandbakkavegur 4 íbúð 0101 3ja herbergja 99,3 fm. Úthlutun færð í trúnaðarbók
3. Önnur mál
Húsnæðisnefnd ítrekar gildandi reglur um hundahald í leiguíbúðum sveitarfélagsins og felur starfsmanni að vinna í málinu.
Ásta lagði fram lista yfir íbúðir, leigu og upphaf leigusamninga allra íbúða í leigukerfinu. Hún upplýsti að innheimta húsleigu væri góð.
Einnig lagði hún fram minnisblað frá 3. maí sl. varðandi sölu á íbúðum úr kerfinu.
Húsnæðisnefnd ítrekar fyrri bókun sína frá 3. maí sl. varðandi sölu á íbúðum og beinir því til bæjarráðs að taka málið upp.
Fundi slitið kl: 17:00


