Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 70
70. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 29. ágúst 2006 kl. 16:15.
Mættar voru: Guðrún Ingimundardóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir.
1. Úthlutun íbúða
- Sandbakkavegur 4 íbúð 0101 3ja herbergja 99,3 fm. Úthlutun færð í trúnaðarbók
- Sandbakki 1 íbúð 0203 3ja herbergja 100 fm. Úthlutun færð í trúnaðarbók
- Sandbakki 1 íbúð 0103 2ja herbergja 73,5 fm. Úthlutun færð í trúnaðarbók
2. Önnur mál
Lagt fram bréf frá Hraun fasteignasölu dags. 23. ágúst sl varðandi boð um kaup á íbúð að Silfurbraut 4 íbúð merkt 0203.
Húsnæðisnefnd leggur til við bæjarráð að hafna boðinu og vísar til fyrri samþykkta um sölu íbúða úr kaupleigukerfinu ennfremur leggur hún til að tvær íbúðir á Silfurbraut 4 verði settar á sölu.
Halldóra leggur til að samræmt verði leiguverð m.v. stærð og herbergjafjöld.
Fundarmenn eru sammála um það að leiguverð í kaupleigukerfinu verði sem næst leiguverði á almennum markaði.
Fundi slitið kl: 17:15


