Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 67
67. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 3. maí kl: 17:00. Mætt voru: Kristín Gísladóttir, Örn Arnarson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir.
Dagskrá:
1. Ársreikningar
Ásta kynnti ársreikning 2005. Niðurstaða ársins er halli upp á 74 þúsund sem er mun betri afkoma en árið 2004. Húsnæðisnefnd lýsir ánægju sinni yfir niðurstöðu ársreiknings og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
2. Sala á fasteignum
Ásta lagði fram minnisblað dags. 3. maí 2006 varðandi sölu á íbúðum í kaupleigukerfinu. Húsnæðisnefnd mælir með því að farið verið í það ferli sem lagt er til skv. minnisblaðinu og að það verði lagt fyrir bæjarráð til skoðunar.
3. Önnur mál
Fundi slitið kl. 17:40


