Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 65
65. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 31. janúar kl: 17:00. Mætt voru: Kristín Gísladóttir, Örn Arnarson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir.
Dagskrá:
1. Úthlutun íbúða
· Sandbakkavegur 2 0103 100,1 fm. 3 herb. Úthlutun sjá trúnaðarbók.
· Sandbakkavegur 6 0103 117,4 fm. 5 herb. Úthlutun sjá trúnaðarbók
· Víkurbraut 13 0201 94 fm. 4 herb. Úthlutun sjá trúnaðarbók
· Silfurbraut 4 0301 115,2 fm. 4 herb. Úthlutun frestað.
2. Sala og kaup á fasteignum.
Ásta kynnti stöðu mála varðandi innlausnaríbúðir og sagði að verið væri að ganga frá kaupum á Silfurbraut 4 fastanúmer 218-1218, Sandbakkaveg 4 fastanúmer 218-1157 og Sandbakka 3 fastanúmer 218-1174 eru þessa íbúðir allar í leigu. Einnig sagði hún að keypt hafi verið búseturéttur í tveimur íbúðum að Víkurbraut 30 vegna breytinga á dvalarheimili. Heilbrigðisstofnun Suðausturlands leigir þrjár íbúðir að Víkurbraut 26 fyrir dvalarheimili.
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar samþykkir að íbúð á Bjarnahóli 4 fari í sölumeðferð.
3. Önnur mál
Fundi slitið kl. 17:40


