Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 64
34. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 1. október kl: 17:00. Mætt voru: Kristín Gísladóttir, Reynir Gunnarsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir.
Dagskrá:
1. Úthlutun íbúða
· Sandbakkavegur 2 0103 100,1 fm. 3 herb.
Úthlutun sjá trúnaðarbók.
· Sandbakkavegur 4 0201 107,7 fm. 4 herb.
Úthlutun sjá trúnaðarbók
2. Fjárhagsáætlun 2006
Ásta lagði fram fjárhagsáætlun 2006 þar kemur m.a. fram að húsaleigutekjur eru um 20,3 m.kr. rekstur um 11,3 m.kr. þar af 4,9 m.kr. í viðhald og fjármagnskostnaður 6,5 m.kr. Niðurstaða upp í afborganir eru um 5,4 m.kr. Afborganir langtímalána eru 8 m.kr. Halli er rúmlega 2,6 m.kr.
Húsnæðisnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun og vísar henni til fyrstu umræðu í bæjarstjórn.
Lögð var fram áætlun um meiriháttar viðhald frá tæknideild dags. 1. nóv. Fjárþörf er rúmlega 18 m.kr. Tillaga tæknideildar er um 6,4 m.kr. árið 2006.
3. Önnur mál
· Ásta tilkynnti að búið sé að selja og afhenda Bjarnahól 6.
Fundi slitið kl. 18:00


