Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 63
63. fundur
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 63. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 6. september kl: 17:00.
Mætt voru: Kristín Gísladóttir, Örn Arnarson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Dagskrá:
1. Úthlutun íbúða
· Víkurbraut 11 0101 71,65 fm. 3 herb. Úthlutað sjá trúnaðarbók.
· Víkurbraut 11 0102 84,30 fm. 3 herb. Úthlutað sjá trúnaðarbók.
· Sandbakkavegur 2 0103 100,1 fm. 3 herb. Úthlutun frestað.
2. Sala fasteigna
Ásta lagði til að Bjarnahóll 6 færu í sölumeðferð, einnig kynnti hún áætlun tæknideildar dags. 2. september um viðhald á Hraunhól 4 og Bjarnahól 6 áður en til sölu kæmi. Húsnæðisnefnd leggur til við bæjarráð að Bjarnahóll 6 verði seldur og ítrekar áður samþykkta sölu á Hraunhóli
4. Sigríður Kristinsdóttir mætti á fundinn og ræddi um sölu fasteinga í sveitarfélaginu og áhuga manna á að kaupa íbúðir sveitarfélagsins til útleigu. Húsnæðisnefnd beinir því til bæjarráðs að skoða þann möguleika að selja íbúðir úr kaupleigukerfinu til einkaaðila sem hafa sýnt áhuga á að kaupa og reka þær áfram sem leiguíbúðir.
3. Önnur mál
Fundi slitið kl. 18:05


