Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð Húsnæðisnefndar
46. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúsi þriðjudaginn 3. desember kl: 16:30
Mætt voru: Kristín Gísladóttir ,Örn Arnarson og Kristín G. Gestsdóttir Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Dagskrá:
1. Úthlutun íbúða
· Sandbakki 3 0202 tveggja herbergja íbúð stærð 59,3 fm. Úthlutað sjá trúnaðarbók.
· Sandbakki 1 0203 fjögurra herbergja íbúð stærð 100,1 fm. Úthlutað sjá trúnaðarbók.
· Hraunhóll 4 0202 tveggja herbergja 82,8 fm. Úthlutað sjá trúnaðarbók
· Víkurbraut 26 0201 tveggja herbergja íbúð 72,5 fm. Úthlutað skv. tillögu þjónustuhóps aldraðra og fært í trúnaðarbók.
2. Umsókn um viðbótarlán
· Umsókn dags. 25. nóvember 2002 um viðbótarlán að upphæð kr. 1.900.000.-. Örn vek af fundi á meðan afgreiðsla fór fram. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
3. Fjárhagsáætlun 2003
· Helgi Már mætti á fund og lagði fram áætlun um viðhald. Heildarviðhaldsþörf er í dag kr. 9,7 milljónir, æskilegt að meiriháttar við verði kr. 1,8 millj. árið 2003.
Ástu er falið að skoða viðhaldssjóði kerfisins m.t.t. þess viðhalds sem fram fer á næsta ári. Húsnæðisnefnd leggur til að meiriháttar viðhald verði kr. 1.470 þúsund á næsta ári og mun þá kerfið verða rekið með 2.940 þús. kr. tapi sem er sú tala sem gert er ráð fyrir í rekstaramma sveitasjóðs. Húsnæðisnefnd samþykkir áætlunina og vísar henni til fyrstu umræðu í bæjarstjórn.
4. Önnur mál
Fundi slitið kl. 18:00
Ásta H. Guðmundsdóttir
Kristín Gísladóttir
Örn Arnarson
Kristín G. Gestsdóttir


