Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð Húsnæðisnefndar
45. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar á skrifstofu fjármálastjóra ráðhúsi miðvikudaginn 13. nóvember kl: 16:30
Mætt voru: Kristín Gísladóttir og Örn Arnarson Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Dagskrá:
1. Úthlutun íbúða
· Sandbakki 1 0101 þriggja herbergja íbúð stærð 84 fm.. Úthlutað til Rakelar Ó. Heimisdóttur
2. Umsókn um viðbótarlán
· Umsókn dags. 4. nóvember 2002 um yfirtöku á viðbótarláni að upphæð kr. 2.221.669.- Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
· Umsókn dags. 1. nóvember 2002 um viðbótarlán að upphæð kr. 560.000.-. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
· Umsókn dags. 6. nóvember 2002 um viðbótarlán að upphæð kr. 1.220.755.-. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
3. Sala á íbúðum
Ásta kynnti væntanleg kauptilboð í tvær íbúðir, Bjarnahól 4 og Víkurbraut 30
Húsnæðisnefnd vísar málinu til bæjarráðs.
4. Önnur mál
Fundi slitið kl. 17:00
Ásta H. Guðmundsdóttir
Kristín Gísladóttir
Örn Arnarson


