Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð Húsnæðisnefndar
44. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar á skrifstofu fjármálastjóra ráðhúsi mánudaginn 21. október kl: 16:30
Mætt voru: Kristín Gísladóttir, Örn Arnarson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Dagskrá:
1. Úthlutun íbúða
· Bjarnahóll 4 0102 þriggja herbergja íbúð stærð 84,40 fm.. Úthlutað til Önnu Jónu Úlfarsdóttur
· Bjarnahóll 2 0202 tveggja herbergja íbúð stærð 69,6 fm.. Úthlutað til Óskars Bjarna Birgissonar.
· Sandbakkavegur 2 0102 tveggja herbergja íbúð stærð 58 fm. Úthlutað til Nönnu Jónsdóttur.
2. Umsókn um yfirtöku á viðbótarláni
Umsókn dags. 9. október 2002 um yfirtöku á viðbótarláni sem hvílir á Bjarnahól 5, fastanúmer 2180565. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
3. Erindisbréf
Farið var yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið og þær staðfestar og erindisbréfið samþykkt. Húsnæðisnefnd vísar ernindisbréfinu til samþykktar í bæjarstjórn.
4. Önnur mál
a) Endurskoða þarf starfsreglur húsnæðisnefndarinnar fyrir nóvemberlok.
b) Fjárhagsáætlun 2003 verður lög fyrir næsta fund.
c) Gera þarf yfirlit um rekstrarhalla kerfisins undanfarin ár, ásamt áætlun um viðhald m.t.t. umsóknar úr varasjóði húsnæðismála.
Fundi slitið kl. 17:15
Ásta H. Guðmundsdóttir
Kristín Gísladóttir
Örn Arnarson
Kristín G. Gestsdóttir


