Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð Húsnæðisnefndar 61
61. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 30. nóvember kl: 16:30.
Mætt voru: Kristín Gísladóttir, Örn Arnarson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Úthlutun íbúða
· Sandbakkavegur 6 0203 117,5 fm. 5 herb. Úthlutað sjá trúnaðarbók.
2. Umsóknir um viðbótarlán
· Umsókn dags. 1. nóvember 2004 um viðbótarlán að upphæð kr. 1.625.000.-. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
· Umsókn dags. 22. október 2004 um viðbótarlán að upphæð kr. 1.150.000.- Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
· Umsókn dags. 22. nóvember 2004 um yfirtöku á viðbótarláni að upphæð kr. 1.241.700.-. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
· Umsókn dags. 5. nóvember 2004 um viðbótarlán að upphæð kr. 750.000.-. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
· Umsókn dags. 5. nóvember 2004 um viðbótarlán að upphæð kr. 600.000.-. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
· Umsókn dags. 26. nóvember 2004 um viðbótarlán að upphæð kr. 2.000.000.-. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
3. Fjárhagsáætlun 2005
Ásta kynnti fjárhagsáætlun 2005. Niðurstaða rekstrar er 4.360 þús.kr. upp í afborganir sem áætlaðar eru 7,6 mkr. Halli er því 3.240 þús.kr. Húsnæðisnefnd vísar fjárhagsáætluninni til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
4. Önnur mál
Kynnt var bréf frá Hrauni dags. 3. nóvember varðandi kaup á íbúð í Ekru.
Húsnæðisnefnd sé ekki ástæðu til að sveitarfélagið kaup þessa íbúð að svo stöddu.
Fundi slitið kl. 17:15


