Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 151
151. fundur
151. fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 18. desember 2012 og hófst hann kl.16:00.
Fundinn sátu:
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll Ólafsson aðalmaður
Hannes Ingi Jónsson varamaður
Karl Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
201202010 - Sjávarföll í Hornafirði |
||
|
Sigurður sagði frá uppsetningu á flóðhæðarmæli. Nánari upplýsingar um verkefnið koma á næsta fund. |
||
|
|
||
|
2. |
200906008 - Mælingar á grynnslum og höfninni |
|
|
Sigurður gerir grein fyrir málinu. Sagði frá hugmynd um kaup á mælingartækjum. Nánari upplýsingar um verkefnið koma á næsta fund.
|
||
|
|
||
|
3. |
201008061 - Viðhaldsdýpkun í höfninni |
|
|
Sigurður gerði grein fyrir samskiptum við Siglingastofnun, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun um losun efnis við Stapaklett. Næst fer málið fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sveitarfélagsins. Kostnaðaráætlun fyrir lagningu dælulagnar kynnt. |
||
|
|
||
|
4. |
201205013 - Verksamningur um viðhaldsdýpkun |
|
|
Sigurður kynnti núverandi verksamning. Hafnarstjórn óskar eftir fundi með Siglingastofnun um málið. |
||
|
|
||
|
5. |
201003079 - Gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn |
|
|
Sigurður kynnti hugmyndir um breytingar á gjaldskrá. Reynir lagði til að leiga á lóð fyrir gáma yrði hækkuð. Ákveðið að laga umrætt svæði til á nýju ári. Framlögð gjaldskrá samþykkt með áorðnum breytingum. |
||
|
|
||
|
6. |
201106046 - Framkvæmdir og viðhald við höfnina |
|
|
Sigurður upplýsti að von sé á tölum í zinkun á Miklagarðsbryggju og Álaugareyjarbryggju fljótlega. Jafnframt var rætt um kostnað við endurbætur á Hellisvita. Samþykkt að fara í endurbætur á syðri flotbryggju og óskað er eftir verðhugmyndum fyrir næsta fund. Jafnframt samþykkt að gera áætlun um malbikun á Krosseyjarvegi. |
||
|
|
||
|
7. |
201212040 - Farþegaskipamál. |
|
|
Sigurður og Valdemar upplýstu um ferð sína á kaupstefnu á Mairsaille í sl. mánuði. Einnig upplýsti Sigurður um áætlun um hvað farþegar af skemmtiferðaskipum skilja eftir sig í hagkerfinu við hverja komu. Rætt um frekari markaðssetningu, m.a. með því að nálgast útgerðir skemmtiferðaskipa utan kaupstefna. |
||
|
|
||
|
8. |
201211036 - Önnur mál hafnarstjórnar. |
|
|
Reynir upplýsti að verkstjóri í Áhaldahúsi komi með veitumál á næsta fund. Hannes ræddi um vöntun á aðgengi að sorpílátum á bryggjunni. |
||
|
|
||


