Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 51
51. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 15. desember, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson, Ásgeir Gunnarsson, Albert Eymundsson, Ásta Guðmundsdóttir, Sigfús Harðarson, og Valur Sveinsson.
1. Fundargerðir
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 50. fundur 1. desemberr 2003.
Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2004
Albert kynnti breytingar á fjárhagsáætlun þar sem grynnslin fara úr 44.500 þkr. í
56,900 þkr. Jafnframt var samþykkt að setja inná áætlun 500 þkr. í upptökubraut. Framkvæmdir verða nettó 47.425 þkr.
Aðrar breytingar eru að í sameiginlegum kostnaði lækkar viðhald hafnarmannvirkja úr 2.0 Mkr í 1.5 Mkr. , viðhald lóðsbáts hækkar úr 500 þkr í 750 þkr. og viðhald áhalda og tæka hækkar úr 250 þkr. í 500 þkr.
Einnig var rætt um endurnýjun á bíl sem hafnarstarfsmenn hafa til afnota og var samþykkt að hækka fjárveitingu vegna hugsanlegrar endurnýjunar á bíl um 100 þkr.
Með kynntum breytingum er fjárhagsáætlun 2004 samþykkt.
3. Samgönguáætlun 2005 - 2008
Albert kynnti tillögur um framkvæmdir í Hornafjarðarhöfn vegna samgönguáætlunar fyrir 2005 - 2008.
Reynir ræddi um hvort ekki væri hægt að flýta byggingu nýrrar stálþilsbryggju um eitt ár eða þannig að hún verði öll innan ársins 2006. Rætt var um að reyna að þoka sem flestum verkefnum sem fyrirhuguð eru eftir 2006 til ársins 2006 eða fyrr. Einnig var rætt um hvort vinna að loka frágangi á fjörum innan hafnarinnar ætti ekki að koma inná áætlunina.
Hafnarstjóra falið að ganga frá tillögunum til Siglingastofnunar í samræmi við tillögur stjórnar manna
4. Hafnarvernd
Albert kynnti gögn sem unnin hafa verið í sambandi við hafnarvernd fyrir Hornafjarðarhöfn. Stjórnarmenn eru ánægðir með þá vinnu sem unnin hefur verið við verkefnið.
5. Önnur mál
Albert kynnti bréf þar sem óskað er eftir niðurfellingu á aflagjöldum á hrogn og lifur. Erindinu var hafnað og vísað til afgreiðslu á sambærilegum málum.
Albert kynnti erindi frá Björgunarfélaginu Landsbjörg þar sem rætt er um fjölgun björgunarskipa við strandlengjuna.
Fundi slitið 22:00
Ari Jónsson
Halldór Tjörvi Einarsson
Reynir Arnarson
Ásgeir Gunnarsson
Albert Eymundsson
Valur Sveinsson
Sigfús Harðarson


