Fundargerð hafnarstjórnar 144
144. fundur
144. fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 18. apríl 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll Ólafsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson
Haukur Ingi Einarsson (HIE)
Birgir Árnason
Sigfús Harðarson
Vignir Júlíusson
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
201203059 - Dýpkun í Hornafjarðarhöfn 2012 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samtölum við starfsmenn Siglingastofnunar. Sagði að þörf á allt að 39 þúsund rúmmetra dýpkun í innri höfninni og Siglingastofnun kæmi að minnsta kosti að dýpkun sem að minnsta kosti nemur 29 þúsund rúmmetrum.
Hafnarstjórn sammála um að dælt verði 39 þúsund rúmmetrum úr höfninni í ár og framkvæmdum verði lokið eigi síðar en í maí.
|
| |
|
|
| 2. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Reynir ítrekaði það við starfsmenn að unnin verði viðhaldsáætlun fyrir höfnina.
Nína sagði að trillukarlar hafi rætt við sig um hvort tengja mætti rafmagn og vatn við báta eftir að þeir hafi verið teknir upp við upptökubrautina.
Fleira ekki gert.
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16.30