Fundargerð hafnarstjórnar 143
143. fundur
143. fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 26. mars 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Sigurður Ægir Birgisson varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Gísli Karl Ágústsson 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE) starfsmaður tæknisviðs
Birgir Árnason starfsmaður tæknisviðs
Sigfús Harðarson embættismaður
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
201203059 - Tillaga að dýpkun í Hornafjarðarhöfn 2012 |
|
|
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar samþykkir að dæla allt að 50.000 m3 úr höfninni vorið 2012 og losa efnið á Leirusvæðið. Til þess þarf að hækka garð á Leirusvæði um allt að 1 metra. Þetta verður í síðasta sinn sem dælt verður á Leirusvæðið og leggur hafnarstjórn áherslu á að gengið verði þannig um svæðið allt að ekki verði sandfok úr því í framtíðinni. Starfsmönnum er falið að undirbúa aðgerðir þar að lútandi nú þegar.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar skorar á samgönguyfirvöld að viðurkenna viðmiðunardýpi í höfninni 8 m í stað 7.5 m. Einnig að endurskoðuð verði graftrarmörk fyrir höfnina og auka stuðning sinn við viðhaldsdýpkun og greiði 75 % hlut sinn í ofangreindri dælingu að fullu.
Hafnarstjórn beinir því til bæjarstjórnar Hornafjarðar að leggja út fyrir kostnaðinum, sem búast má við að verði samtals kr. 57.029.072.- Hlutur hafnarinnar 14.257.268.- og hlutur ríkis 42.771.804.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar að fylgja erindinu eftir við viðkomandi yfirvöld.
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna að nákvæmri kostnaðar- og fýsileikagreiningu á losunarstað fyrir efni úr höfninni til framtíðar, t.d. yfir á Austurfjörur eða í fjörðinn í námunda við Óslandssker.
|
| |
|
|
| 2. |
201112028 - Grynnsli- staða mála |
|
|
Farið var yfir mælingar á grynnslum frá 18. mars sl. Fram kom að grynnslin eru breiðari en undanfarin ár.
Hafnarstjórn skorar á samgönguyfirvöld að ljúka sem allra fyrst þeim rannsóknum sem þegar eru hafnar á grynnslunum við Hornafjarðarós.
Fyrir liggur aðgerðaráætlun Siglingastofnunnar Íslands þar að lútandi.
|
| |
|
|
| 3. |
201201077 - Bræðslubryggja rofavörn -útboð |
|
|
Gerð var grein fyrir verðkönnun. Fram kom að eitt tilboð barst í verkið og var það undir kostnaðaráætlun. Tilboð var upp á 3.004.270.- Samþykkt að taka tilboðinu. |
| |
|
|
| 4. |
201203066 - Hornafjarðarveitur |
|
|
Birgir gerði grein fyrir fráveituframkvæmdum við Tjaldsvæði og Nesjahverfi. Fram kom að hreinsivirki við Leiðarhöfða virkar vel samkvæmt síðustu losun á mannvirkinu. |
| |
|
|
| 5. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Sigurður gerði grein fyrir ferð sem hann fór í til Miami 10 mars sl. Tilgangur ferðarinnar var að kynna Hornafjarðarhöfn á sýningu fyrir hafnir sem taka á móti skemmtiferðarskipum.
Fram kom að ferðin var árangursrík, komið var á tengslum við fyrirtæki og aðila í greininni. Bókaður var nýr aðili fyrir árið 2014 og vonir bundnar við að það skip komi í fimm ár eftir það.
Hafnarstjórn samþykkir að formaður hafnarstjórnar og Sigurður Guðmundsson verði fulltrúar hafnarinnar á aðalfund Cruise Iceland. Formaður fari með atkvæði hafnarinnar.
Haukur Ingi gerði grein fyrir verðtilboðum í nýja hafnarvog. Starfsmönnum falið að yfirfara tilboðin og velja hagkvæmasta kostinn.
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40