Fundargerð hafnarstjórnar 139
139. fundur
139. fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 20. desember 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Sigurður Ægir Birgisson varaformaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll Ólafsson aðalmaður
Hannes Ingi Jónsson 1. varamaður
Haukur Ingi Einarsson (HIE) starfsmaður tæknisviðs
Birgir Árnason starfsmaður tæknisviðs
Sigfús Harðarson embættismaður
Vignir Júlíusson embættismaður
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201111016 - Miklagarðsbryggja - undirbúningur framkvæmda |
|
|
Farið yfir hugmyndir um hvernig best er að standa að endurbótum. Einnig gerð grein fyrir komu starfsmanns Siglingastofnunar sem mun m.a. skoða bryggjuna. |
| |
|
|
| 2. |
201112024 - Loðnubryggja - undirbúningur framkvæmda |
|
|
Farið yfir hugmyndir um hvernig best er að standa að endurbótum. Einnig gerð grein fyrir komu starfsmanns Siglingastofnunar sem mun m.a. skoða bryggjuna.
Undir þessum lið var einnig rætt um endurbætur á hafnarvog.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að undirbúningi framkvæmda á Miklagarðsbryggju, Loðnubryggju og hafnarvogar. |
| |
|
|
| 3. |
201111011 - Hafnareglugerð |
|
|
Hafnarstjórn bendir á að samkvæmt samgönguáætlun er Hornafjarðarhöfn flokkuð sem stór fiskihöfn og skal dýpi skv. því vera að lágmarki 9 m. Starfsmönnum falið að ræða við Siglingastofnun um hvernig megi standa að því að uppfylla þær kröfur. Rætt var um flokkun hafnarinnar og mörk hafnarsvæðis út frá aðalskipulagi. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að fara yfir hafnarreglugerð og hvernig hún samrýmist núgildandi lögum. |
| |
|
|
| 4. |
201112028 - Grynnsli- staða mála |
|
|
Farið yfir nýjustu mælingar á Grynnslum, rætt var um mismunandi útfærslur á mæliaðferðum. Hafnarstjórn bendir á að Siglingastofnun hafi fengið á fjárlögum 2012 fjármagn til að rannsaka grynnslin úti fyrir Hornafjarðarósi. Einnig farið yfir vinnu starfsmanna Verkís og Siglingastofnunar um gerð líkans um Hornafjarðarós. Kom fram að verkefinu miðar áfram en líkanið er afar flókið. Kom fram að verið sé að ná endanlegum tökum á líkaninu og í kjölfarið verður hægt að skoða áhrif af ýmsum inngripum í það. |
| |
|
|
| 5. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Ægir spurðist fyrir um fok á Leirusvæði. Starfmenn gerðu grein fyrir þeim aðgerðum sem unnið hefur verið að til að hefta fok.
Rætt var um ástand á Birni Lóðs. Fram kom að huga þarf að lagfæringu á gírum í bátnum.
Haukur ræddi um framtíðarsvæði fyrir uppdælingu. Stefnir hann að fundi með Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun á nýju ári um framtíðar losunarsvæði. Starfsmönnum falið að vinna tillögu að næsta losunarsvæði. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:10