Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 135
135 . fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 10. maí 2011 og hófst hann kl. 11:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, , Sigurður Ægir Birgisson,Páll Ólafsson, Valdemar Einarsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Birgir Árnason og Sigfús Harðarson. Nína Sibyl boðaði forföll.
Dagskrá:
1. Dýpkun
Starfsmenn Siglingastofnunar, Sigurður Áss Grétarsson, Jóhann Sigurðsson og Kristján Helgason, voru í síma undir þessum lið. Rætt um samninga við Íslenska Gámafélagið, hvenær útlit væri fyrir að dýpkunarskip kæmi til Hornafjarðar, skilmála í útboði og verkáætlun hafnarinnar fyrir dýpkun. Hafnarstjórn leggur áherslu á að skrifað verði undir samning áður en Skandía leggur af stað til Hafnar og að skipstjórar Skandíu hafi séð dýpkunaráætlunina og telji sig ráða við verkefnið.
Fundi slitið kl. 11.30


