Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 134
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 5. maí 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Sigurður Ægir Birgisson, Nína Sibyl Birgisdóttir, Páll Valdemar Ólafsson, Valdemar Einarsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Birgir Árnason og Sigfús Harðarson.
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs.
Dagskrá:
1. Dýpkun
Reynir fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir fundi með Siglingastofnun sem hann átti í síðustu viku. Reynir gerði grein fyrir því að hann hafi lagt til að hafna öllum tilboðum á fundinum og ganga til samninga við Dýpkunarfélagið Trölla ehf. Forsvarsmenn Siglingastofnunnar hafi hafnað þeirri tillögu og því ákveðið að ganga til samninga við lægstbjóðandi um dýpkun í Hornafjarðarhöfn. Hafnarstjórn leggur áherslu á að tryggð verði örugg leið inn að bryggju, jafnframt að uppgjör vegna dælingar verði í samræmi við samning og útboðsgögn og að ekki verði greitt fyrr en að lokamæling hafi farið fram. Starfsmönnum falið að útfæra dýpkunarsvæði miðað við 33.000 m³ í samráði við varaformann hafnarstjórnar. Umræður sköpuðust um framtíðar dýpkunarsvæði og dýpt hafnarinnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að fara fram á við Siglingastofnun um að fara almennt yfir dýpkunarmál í höfninni, bæði er varðar dýpkunarsvæði og dýpi. Undir þessum umræðum var farið yfir dýptarmælingar frá því síðast var dýpkað og til dagsins í dag.
2. Ráðning hafnarvarðar
Reynir fylgdi málinu úr hlaði. Farið var yfir umsóknarferlið, þrjár umsóknir bárust um starf hafnarvarðar. Enginn umsækjandi uppfyllir öll skilyrði auglýsingar, hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ræða við umsækjendur.
3. Farþegaskipsiglingar með lóðsbát
Reynir fylgdi málinu úr hlaði, hafnarstjórn leggur áherslu á að öryggisbúnaður lóðsbáts uppfylli þær öryggiskröfur sem gerðar eru til hans við tækifærissiglingar. Starfsmönnum falið að vinna úr málinu.
4. Önnur mál
Ægir vakti máls á lokun á hafnarsvæðinu við Bátstanga, umræður sköpuðust um málið. Starfsmönnum falið að fara yfir málið og leggja fyrir á næsta fundi hafnarstjórnar.
Starfsmenn lögðu til breytingar á gjaldsskrá hafnarinnar, lögðu þeir til að gjald fyrir rafmagn verði 13,1 kr. án vsk. hver kw. stund og að lágmarksgjald samsvari 300 kw. stundum.
Umræður sköpuðust um Melabryggju, hafnarstjórn sammála um að taka málið upp við fjárhagsáætlunargerð næsta árs.
Umræður sköpuðust um fundartíma hafnarstjórnar og útsendingartíma fundargagna.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 13:15


