Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 133
133. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 6. apríl 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Sigurður Ægir Birgisson, Nína Sibyl Birgisdóttir, Valdemar Einarsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Birgir Árnason, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 201008061 - Viðhaldsdýpkun í höfninni
Kristján Helgason og Jóhann Þór Sigurðsson hjá Siglingastofnun sátu fundinn undir þessum lið í síma.
Tilboð í viðhaldsdýpkun hafnarinnar voru eftirfarandi:
1. Dýpkunarfélagið Trölli ehf. kr. 70.800.000 eða 182,7% af kostnaðaráætlun.
Frávikstilboð Trölli ehf. kr. 51.950.000 eða 134,1% af kostnaðaráætlun.
2. Íslenska Gámafélagið ehf. kr. 38.750.000 eða 113,5% af kostnaðaráætlun.
Kom fram að Siglingastofnun mælir með að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.
Reynir spurðist fyrir um hvenær lægstbjóðandi gæti hafið störf við dýpkun hanfarinnar ef samið verði við þá. Jóhann Þór svarar því til að skipið gæti verið laust í byrjun maí, skipið gæti komið fyrr ef til þess kæmi.
Spurt var um hvort búið væri að ræða við lægstbjóðanda um hvort hægt er að dæla efni upp á Leirusvæði. Jóhann Þór svarar því til að ekki sé búið að ræða við tilbjóðendur um verkið þar sem ekki er búið að taka ákvörðun um töku tilboðs. Umræður sköpuðust um hvort lægstbjóðandi geti dýpkað við stálþil innan Hornafjarðarhafnar. Rætt var um fyrri samstarf Hornafjarðarhafnar við lægstbjóðanda. Umræður sköpuðust um mikilvægi þess að dæling upp á Leirusvæði verði lokið fyrir 15. maí þar sem svæðið er á viðkvæmum stað innan Hafnar, sá þarf grasfræi í svæðið í vor til að hefta fok úr því.
Hafnarstjórn er sammála um að ganga til samninga við lægstbjóðanda en leggur mikla áherslu á að ekki verði kvikað frá tímamörkum né losunarstað samkvæmt útboðinu.
Fundarmenn sammála um að vinnubrögð sem viðhöfð voru síðast þegar Íslenska Gámafélagið vann að viðhaldsdýpkun voru ekki góð. Stór munur hefði verið á þegar Dýpkunrfélagið Trölli ehf. vann verkið. Vandasamt er að dýpka í Hornafjarðarhöfn og komu fram efasemdir frá fundarmönnum um að dæluskip frá Íslenska Gámafélaginu myndi ráða almennilega við verkefnið.
Hafnarstjórn leggur áherslu á að fá fulltrúa í viðræðum um gerð samnings.
2. 201003079 - Gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn
Haukur Ingi greindi frá rafmagnssölu í höfninni. Kom fram að verð á hverja kwst í höfninni er hærra en gengur og gerist en á móti er ekki tekið fyrir tengingu, hvorki í dagvinnu né yfirvinnu. Sýndar gjaldskrár í Vestmannaeyjum, Faxaflóa, Hafnarfirði og Grindavík. Starfsmönnum að falið að gera tillögu fyrir næsta fund.
3. 200804075 - Starfsmannamál hafnarinnar
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir samskiptum við starfsmenn hafnarinnar. Umræður sköpuðust um réttindi hafnarstarfsmanna. Hjalti lagði til að auglýst verði eftir hafnarstarfsmanni með tilskilin réttindi þar sem einn starfsmaður hættir störfum í sumar. Hafnarstjórn samþykkir að auglýsa eftir starfsmanni fyrir höfnina. Auglýst verði í heimabyggð og á landsvísu, skilyrði verði gerð um að hafnarstarfmaður hafi full réttindi.
4. 201102011 - Önnur mál
Reynir lagði fram fundargerð stjórnar Hafnarsambands, til kynningar.
Ægir spurðist fyrir um heimavigtunarleyfi. Hjalti gerði grein fyrir stöðu málsins. Hafnarstjórn óska eftir því að fá að fylgjast með málinu áfram.
Ægir spurðist fyrir um vigtarfyrirkomulag á hráefni sem fer frá Skinney - Þinganes með froskinum.


