Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 132
132. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, föstudaginn 11. mars 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurður Ægir Birgisson, Nína Sibyl Birgisdóttir, Valdemar Einarsson, Páll Ólafsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Birgir Árnason,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 201103031 - Viðhaldsdýpkun í Hornafjarðarhöfn 2011
Haukur Ingi gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á útboðsgögnunum. Viðbætur snúa að því að opnað verði á heimild til að auka við uppdælt magn á verktímanum og að verktaki útvegi 240 m af 500 mm lögnum til að tengja við dælulögn sveitarfélagssins. Hafnarstjórn samþykkir framlögð gögn og felur Hafnarstjóra og starfsmönnum að ræða við Siglingastofnun um dýpkunarsvæði hafnarinnar.


