Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 130
130. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 22. febrúar 2011 og hófst hann kl. 12:00.Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Nína Sibyl Birgisdóttir, Valdemar Einarsson, Páll Ólafsson, Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir, Hjalti Þór Vignisson, Birgir Árnason, Sigfús Harðarson, Björgvin Óskar Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201008061 - Dýpkun í höfninni 2010
Björgvin og Birgir fóru yfir hugmyndir að fyrirkomulagi dælingar og undirbúning framkvæmda.
Starfsmönnum falið að bjóða út verkið sem felur í sér undirbúning fyrir dælingu á Leirusvæðið. Lögð áhersla á að sáð verði í svæðið eins fljótt og kostur er, eftir að dæling hefur farið fram.
Starfsmönnum falið að ræða fyrirkomulag dælingar við Siglingastofnun.
Umræður sköpuðust um breytingar á dælustöð í Hólmslindum. (Hjalti vék af fundi undir þessum umræðum). Nefndin er samþykk breytingum á dælustöð í Hólmslindum með þeim fyrirvara að breytingar séu í samræmi við samninga við Seljavelli og Akurnes.
2. 201003079 - Gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn
Sigfús fór yfir nýja gjaldskrá og benti á nokkur atriði sem hafi vakið starfsmenn hafnarinnar til umhugsunar. Benti sérstaklega á sorphirðu frá smærri bátum og yfirvinnu vegna vigtunar á höfninni.
Hafnarstjórn samþykkir að breyta gjaldskrá vegna sorphirðu. Jafnframt samþykkt að nota tímagjald vegna vigtunar frá árinu 2010 með verðbótum.
3. 200911030 - Drög að reglugerð um vigtun sjávarafla
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum vegna málsins. Hafnarstjórn hefur verulegar efasemdir um hugmyndir um að afleggja heimavigtanir. Hafnarstjórn telur að engar breytingar eigi að gera nema að undangengnu samráði við allar hafnir landsins og að undangengnu samráði við aðra hagsmunaaðila.
4. 200904062 - Samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við Ómar Antonsson vegna bryggju á Austurfjöru. Sigfús gerði grein fyrir gjöldum sem greidd eru vegna komu skipa á bryggju á Austurfjörum.
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að afla upplýsinga um hversu mikið af efni hefur farið um höfnina, tekjur hennar o.fl. atriði og leggja fyrir næsta fund hafnarstjórnar.
5. 201102059 - Björgunarbátasjóður - styrkumsókn
Rætt um styrkumsókn frá björgunarbátasjóði sem bæjarráð vísaði til hafnarstjórnar. Kom fram að hafnarsjóður greiðir rafmagn, vatn og sinnir sorpmálum fyrir Ingibjörgu ásamt því að Ingibjörg fékk hlutdeild í björgunarlaunum vegna björgunar Axels. Hafnarsjóður samþykkir styrk upp á 250 þúsund krónur á árinu 2011.
6. 201102011 - Önnur mál
Valdemar spurðist fyrir um ljósalistaverk á vatnstankinum.


