Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 128
128. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 25. nóvember 2010 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Sigurður Ægir Birgisson, Nína Sibyl Birgisdóttir, Valdemar Einarsson, Páll Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Birgir Árnason, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201007005 - Fjárhagsáætlun 2011
Ásta H. Guðmundsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið. Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2011 kynnt. Kom fram að gert er ráð fyrir afgangi af rekstri upp á 43 m.kr og framkvæmdir upp á 20 m.kr.
Hafnarstjórn samþykkir framlagða tilllögu að fjárhagsáætlun.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarveitna fyrir árið 2011 kynnt. Kom fram að gert er ráð fyrir rekstrarafgangi fyrir árið 3,5 m.kr. og framkvæmdir og fjárfestingar upp á 40 m.kr.
Hafnarstjórn samþykkir framlagða tillögu að fjárhagsáætlun.
2. 201003079 - Gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn
Lagður fram samanburður á gjaldskrám hafna. Hafnarstjórn er sammála um að endurskoða gjaldskrá fyrir farþega skemmtiferðaskipa og gera höfnina samkeppnishæfari hvað það varðar. Birgir greindi frá því að stefnan væri að taka upp verkbókhald á höfninni til að betur sé hægt að átta sig á tíma og kostnaði við einstaka þjónustuþætti hafnarinnar, s.s. vigtun, hafnsögu og viðhald. Rætt um sorpmál og þau úrræði sem til staðar eru í þeim málum.
Nína vék af fundi kl. 13.05.
Hafnarstjórn sammála um að funda fyrir lok desember og ljúka afgreiðslu gjaldskrár á þeim fundi. Vinnu vísað til starfsmanna.
3. 201008059 - Viðhaldsáætlun fyrir Hornafjarðarhöfn
Lögð fram viðhaldsáætlun fyrir höfnina fyrir næstu 10 árin. Kom fram að áætluð fjárþörf eru um 480 m.kr. Samþykkt að afgreiða viðhaldsáætlun á næsta fundi.
4. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Rætt um vegi í Óslandi og mikilvægi þess að endurbæta þá. Starfsmönnum falið að gera áætlun um endurbætur á vegunum og meta kostnað við þær framkvæmdir.
5. 201011037 - Ársreikningur og fjárhagsáætlun Hafnasambands Íslands
Til kynningar.
6. 201011038 - Hlutverk og tækifæri hafna - ályktun frá hafnasambandsþingi 2010
Til kynningar
7. 201011039 - Umhverfismál hafna - ályktun frá hafnasambandsþingi 2010
Til kynningar.
8. 200705114 - Önnur mál
Reynir ræddi um endurskoðun á hafnalögum og sagði frá nefnd á vegum hafnasambandsins um málið.
Reynir greindi frá samtali við verksmiðjustjóra í Óslandi um að setja upp skilti sem segir að óviðkomandi umferð verði bönnuð við Bátstangabryggju og Loðnubryggju, eins og á öðrum hafnarmannvirkjum. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna að málinu.
Rætt um dýpkun innan hafnar á næsta ári. Starfsmönnum falið að gera áætlun um losunarstaði.
Valdemar benti á að á síðasta fundi hafi verið ákveðið að bjóða út hreinsivirki við Leiðarhöfða en útboðið hafi farið fram og afgreitt án afgreiðslu hafnarstjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14.00


