Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 125
125. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, föstudaginn 25. júní 2010 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Sigurður Ægir Birgisson, Nína Sibyl Birgisdóttir, Valdemar Einarsson, Hannes Ingi Jónsson, Örn Arnarson, Hjalti Þór Vignisson, Birgir Árnason, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200806010 - Erindisbréf nefndarinnar
Reynir bauð fundarmenn velkomna. Lesið yfir helstu verkefni nefndarinnar skv. erindisbréfi. Sigfús ræddi um hlutverk hafnarinnar skv. hafnalögum. Kom fram í umræðunni þá áherslu að hafnarstjórn verði rekstrarnefnd áhaldahússins. Einnig varð nokkur umræða um hlutverk hafnarstjórnar varðandi landbrot af völdum sjávar.
Fundurinn gerir ekki tillögu að breytingum á erindisbréfinu.
2. 201006027 - Næstu verkefni nýrrar hafnarstjórnar
Reynir lagði fram eftirfarandi og sagði að listinn væri ekki tæmandi og bað fundarmenn að koma með tillögur um viðbætur á næsta fundi.
Verkefni hafnarstjórnar er að hlúa að lífæð sjávarútvegsins, grunnatvinnugrein sveitarfélagsins. Helstu verkefni nefndarinnar á yfirstandandi kjörtímabili verður:
· Tryggja áframhaldandi traustan rekstur hafnarinnar.
· Vinna viðhaldsáætlun fyrir höfnina sem lokið verði við vorið 2011.
· Rannsóknir hefjast á umhverfi Hornafjarðaróss haustið 2010 og mikilvægt að þeim verði fylgt eftir og ráðist í úrbætur eftir því sem fjármagn leyfir.
· Að markaðsátak hefjist veturinn 2010-2011 með það að markmiði að efla Hornafjarðarhöfn sem löndunarstað fyrir fiskiskip og auka komur skemmtiferðarskipa.
· Vinna markvisst að því að tryggja nægjanlegt dýpi innan hafnarinnar.
· Vinna áætlun um umhirðu og fegrun á hafnarsvæðinu og henni verði lokið vorið 2011.
Í umræðunni var rætt um viðhald á Akureyri og framtíð bryggju á Melatanga.
3. 200705114 - Önnur mál
Reynir ræddi um bræðslubryggju. Kom fram að efni er að koma á staðinn. Staða verktaka er ágæt í sumar og því lagt til að verkið hefjist ekki fyrr en í haust. Samþykkt að óska eftir útboðsgögnin verði tilbúinn í ágúst.
Ægir ræddi um rafmagn á Óslandsbryggju.
Farið yfir dýpi í höfninni. Hafnarstjórn leggur áherslu að dýpið verði mælt við fyrsta hentugleika


