Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 123
123. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í Nýheimum, föstudaginn 23. apríl 2010 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson, Sigurður Ægir Birgisson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201003079 - Gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn
Farið yfir samanburð á gjaldskrá Hornafjarðarhafnar og annarra hafna. Eftir að hafnalög tóku breytingum er mikilvægt að hafnarsjóður geti staðið sjálfur undir öllum framkvæmdum í framtíðinni. Gjaldskrá þarf því að taka mið af framtíðaruppbyggingu í höfninni sem og reksri hennar frá ári til árs. Í því sambandi var m.a. rætt um þörf á endurbótum á Óslandsbryggju. Sigfús Harðarson fór yfir gjaldskrá fyrir farþegaskip. Starfsmönnum falið að halda áfram þessari vinnu og ákvarðanir um breytingar verði ekki teknar fyrr en eftir 6 mánaða uppgjör.
2. 200912014 - Ósk um tilfærslu fjármuna vegna bryggjuframkvæmda
Kom fram að hafnaráð hafi hafnað að flytja fjármuni frá bryggju við Álaugarey og Hafnarvog í Bræðslubryggju. Hafnarstjórn harmar afgreiðslu hafnaráðs. Starfsmönnum í samráði við formann hafnarstjórnar falið að gera áætlun um verkefni sem þarft er að ráðast í t.d. dýpkun við Hellirinn, endurbætur á bryggjum, stækkun á snúningsrými í höfninni o.fl. og leggja fyrir næsta fund hafnarstjórnar.
3. 200910011 - Malbikunarframkvæmdir í sveitarfélaginu 2010
Haukur Ingi fór yfir tillögur að malbikun á hafnarsvæðinu. Hafnarstjórn sammála um að leggja malbik við Álaugareyjarbryggju, Bræðslubryggju og umhverfi Hafnarvogar skv. fyrirliggjandi tillögum með smávægilegum breytingum sem hafnarstjórn samþykkti á fundinum.
4. 200804073 - Dýpkun í Hornafjarðarhöfn
Farið yfir dýpistölur. Hafnarstjórn er sammála um mikilvægt sé að dýpkað verði við Bræðslubryggju og Álaugarey nú í vor . Vegna meiri djúpristu og stærri skipa er nauðsynlegt að dýpi að jafnaði verði meira í höfninni og í umræðunni var vísað í stefnumörkun í samgönguáætlun 2011-2014 um að í stórum fiskihöfnum þurfi dýpi að vera allt að 9,5 metrar. Rætt um losunarstaði og m.a. varnargarð í Sílavík. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að sjá til þess að framkvæmdum við hann verði lokið og jafnframt að gengið verði frá svæðinu þannig að fok verði heft. Hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar falið að fylgja þessari umræðu eftir
5. 201003080 - Farþegaskip - koma til Hornafjarðar
Farið yfir greinargerð sem Sigurður Guðmundsson vann. Sigfús fór yfir málið. Upplýst að Hornafjörður og Djúpivogur hafa verið í samstarfi og eru meðlimir í Cruice Iceland samtökunum. Hafnarstjórn sammála um að vinna kynningarefni fyrir höfnina þar sem öll þjónusta á hennar vegum væri tekinn saman,m.a fyrir útgerðir farþegaskipa. Starfsmönnum falið að fylgja málinu eftir.


