Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 49
49. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 6. október, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Ásgeir Gunnarsson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, Ásta H Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 48. fundur 27. júní 2003.
Fundargerð samþykkt
2. Átta mánaða uppgjör hafnarsjóðs
Ásta Halldóra kynnti átta mánaða uppgjör hafnarsjóðs. Þar kom fram að rekstur hafnarinnar er nokkurn veginn samkvæmt áætlun, en endurskoða þarf tekjuáætlun vegna breyttrar gjaldskrár. Ari vakti athygli á bágborinni veltufjárstöðu hafnarsjóðs og skuldastöðu við bæjarsjóð.
Hafnarstjórn leggur áherslu á að eftirfylgni innheimtu skulda sé fylgt fast eftir.
3. Dýpkunarframkvæmdir
Helgi Már kynnti tillögur og forsendur fyrir dýpkunaráætlun til næstu 3ja ára þar sem gert er ráð fyrir að dýpkað verði í -7,5 metra innan hafnar á ákveðnum stöðum. Fundarmenn eru sammála svæðisskiptingu og dýpi eins og fram kemur á afstöðumynd ( merkt B-6519 ) og fela hafnarstjóra að vinna að því að framkvæmdin verði unnin eins fljótt og kostur er.
Rætt var um að losun efnis yrði með sama hætti og áður þ.e. suður fyrir Ósland og í hólf við Lyngey.
4. Ósk um langtímasamning um hafnargjöld
• Bréf Skinneyjar-Þinganess dags. 19. september 2003.
Albert gerði grein fyrir erindinu og Ari fór yfir lögin, túlkun þeirra og álit í svipuðu máli. Samþykkt var að Albert svari erindinu m.a. í ljósi fyrrnefnds álits samgönguráðuneytisins sbr. bréf 30. sept. 2003.
Ásgeir lýsti yfir vanhæfni sínu í afgreiðslu málsins.
5. Erindi frá Hafnasambandi sveitarfélaga
• Bréf dags. 19. september 2003 v. hafnafundar 31. október 2003.
Hafnarstjórn mælir með því að einhverjir starfsmenn hafnarinnar sæki fundinn
• Bréf dags. 19 september 2003 um. öryggisfræðslu fyrir hafnastarfsmenn.
Hafnarstjórn mælir með því að einhverjir starfsmenn hafnarinnar sæki námskeiðið
6. Hafnavernd - kynning
• Sent í tölvupósti.
Til kynningar
7. Önnur mál
Helgi Már kynnti síðustu mælingar á Grynnslunum. Ekki er um miklar breytingar að ræða. Rætt var um fyrirhugaðar dýpkunarframkvæmdir á Grynnslunum, en engin tilboð bárust á auglýstum tíma. Verið er að skoða þessi mál hjá Siglingastofnun um að framkvæma dýpkunina sem fyrst.
Albert gerði grein fyrir afstöðu bæjarráðs um úthlutun á þorskígildislestum til stuðnings sjávarbyggðum.
Kynnt var ítrekað erindi frá Ragnari Imsland, eldvarnareftirlitsmanni um mál er varða öryggi gegn eldsvoða á hafnarsvæðinu. Þar kom meðal annars fram að geymsla á loðnunótum og fiskikörum við húsveggi er ábótavant, mikill sinugróður í Óslandi gæti valdið tjóni í eldsvoða og frágangi á safngryfju við olíugeyma Rarik er ábótavant. Hafnarstjóra er falið að leysa þessi mál með starfsmanni eldvarnaeftirlits.
Ari ræddi um úttekt á hafnarrekstri og tillögur um sparnað D&T ráðgjöf, frá maí 2002 og lagði fram eftirfarandi bókun ;
"Hafnarstjórn telur nauðsynlegt að auka arðsemi í rekstri Hornafjarðarhafnar.
Hafnarstjóra falið að vinna áfram að endurskoðun á rekstri hafnarinnar með áðurnefnd álit hafnarstjórnar að leiðarljósi og leggja fyrir næsta fund stjórnarinnar tillögu að áætlun um framkvæmd endurskoðunarinnar. Nauðsynlegur þáttur í þessari endurskoðun er að koma á kostnaðargreiningu í rekstrarbókhaldi hafnarinnar sem fyrst, samanber fyrri samþykktir hafnarstjórnar. Hafnarstjórn telur að leita skuli allra leiða til þess að ná bættum rekstri m.a. með því að breyta rekstrarformi, athuga úthýsingu verkefna o.fl."
Hafnarstjórrn er samþykk þessari bóku en Hjördís er andvíg úthýsingu verkefna.
Albert upplýsti að Samgönguráðuneytið hafði endurvakið áhuga sinn á viðræðum um samþættingu á rekstri samgöngustofnana í héraðinu. Hafnarstjórn fagnar þessu og vísar til fyrri samþykkta.
Fundi slitið 22:30
Ari Jónsson
Albert Eymundsson
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
Reynir Arnarson Ásgeir Gunnarsson
Helgi Már Pálsson
Sigfús Harðarson


