Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 121
121. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 25. janúar 2010 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Hjalti Þór Vignisson, Valdemar Einarsson, Birgir Árnason, Björgvin Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200908042 - Hafnarvog - endurbætur og lagfæringar
Lagðar fram tillögur um breytingar á húsnæði, dags. 20. janúar 2010. Tillögurnar hafa verið unnar í samvinnu við starfsmenn hafnarinnar og rúmast innan fjárhagsáætlunar. Hafnarstjórn sammála um að verkið farið í útboð.
2. 200705114 - Önnur mál
Birgir gerði grein fyrir verðkönnun í efni til að lagfæra elsta hluta Bræðslubryggju. Samþykkt að leggja inn pöntun hjá Húsasmiðjunni í efnið, sem er ódýrast þegar flutningur hefur verið tekinn með í útreikninga og afgreiðslutími stystur. Næsta skref er að bjóða vinnu út meðal verktaka á svæðinu. Upplýst að von er á sérfræðingi hjá Siglingastofnun til að fara yfir hvernig best sé að standa að endurbótum.


