Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 120
120. Fundur
Fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, föstudaginn 18. desember 2009 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson, Sigurður Ægir Birgisson, Guðrún Ingimundardóttir, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson, Birgir Árnason, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200908043 - Björgun á Axel
Skipting launa vegna björgunar Axels.
Sigfús Harðarson vék af fundi við afgeriðslu þessa máls.
Hjalti fór yfir minnisblað unnið af Regula lögmannsstofu er varðar skilgreiningu skiptingar björgunarlauna. Hafnarstjórn samþykkir að skipta björgunarlaunum þannig að fyrst verði gerður upp fastur kostnaður vegna björgunarinnar síðan verði björgunarlaunum skipt milli hafnarinnar og Björgunarfélagsins, 2/3 hlutar fara til hafnarinnar og 1/3 hlutar til björgunarfélagsins, síðan skiptist afgangur björgunarlauna milli starfmanna samkvæmt samningi.
2. 200912014 - Ósk um tilfærslu fjármuna vegna bryggjuframkvæmda
Samskipti við Siglingastofnun vegna samgönguáætlunar.
Reynir gerði grein fyrir bréfi frá Siglingastofnun er varðar samgönguáætlun 2009 - 2012, dagsett 15.12.2009. Í erindi Siglingastofnunnar er óskað eftir viðskiptaáætlunum frá höfnum um fyrirhugaðar endurbætur og nýframkvæmdir við hafnir.
Starfsmönnum falið að vinna að viðskiptaáætlun sem send verður inn til Siglingamstofnunnar.
3. 200908042 - Hafnarvog - endurbætur og lagfæringar
Endurbætur á húsnæði hafnarinnar.
Starfsmönnum og formanni Hafnarstjórnar falið að útfæra endanlega tillögu að endurbótum á vigtarhúsi fyrir janúar fund í Hafnarstjórn.
4. 200705114 - Önnur mál
Umræður sköpuðust um rafmagnskapalinn út á Suðurfjörur og innsiglingaljós. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.


