Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 119
119. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 16. nóvember 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Sigurður Ægir Birgisson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson, Sigfús Harðarson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Björgvin Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200905044 - Fjárhagsáætlun 2010
Fjárhagsáætlun 2010
Hjalti greindi frá fjárhagslegri stöðu hafnarinnar. Rekstur er í föstum skorðum. Fjárhagsáætlun 2010 ásamt framkvæmdalista lagt fram til samþykktar. Hafnarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun og framkvæmdalista fyrir árið 2010.
2. 200908042 - Hafnarvog - endurbætur og lagfæringar
Hafnarvog - endurbætur og lagfæringar
Lögð var fram tillaga um að vigt og vigtarhús verði áfram á núverandi stað. Tillaga samþykkt. Starfsmönnum falið að vinna áfram að tillögum í samræmi við umræður á fundinum.
3. 200908043 - Björgun á Axel
Björgun á Axel
Rætt var um skiptingu björgunarlauna. Ákveðið var að óska eftir áliti lögfræðings sveitarfélagins um skiptingu björgunarlauna.
4. 200911030 - Drög að reglugerð um vigtun sjávarafla
Drög að reglugerð um vigtun sjávarafla
Umræður sköpuðust um drög að reglugerð um vigtun sjávarafla. Starfsmönnum falið fylgjast áfram með málinu.
5. 200705114 - Önnur mál
Önnur mál
Sigurður Ægir óskaði eftir því að athugað væri með ljósamöstur við Álaugareyjarbryggju, en ljósin valda truflun fyrir sjómenn sem eiga leið um höfnina. Starfsmönnum falið að vinna að úrbótum.
Rætt var um uppgjör á Álaugareyjarbryggju, hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar falið að ræða við Siglingastofnun um framkvæmdina.


