Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 115
115. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 4. maí 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson, Sigurður Ægir Birgisson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200904097 - Álaugareyjarbryggja - þekja,lagnir og raforkuvirki - útboð og opnun tilboða
Álaugareyjarbryggja - Tilboð sem bárust í verkið þekja við Álaugareyjarbyggju.
Reynir fór yfir málið og lagði fram tillögu Siglingarstofnunar um að ganga til samning við Mikael ehf. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við Mikaeld ehf á grundvelli tilboðs frá Mikael ehf.
Haukur Ingi gerði frein fyrir ósk verktaka um að flytja vinnubúðir á vinnusvæði. Hafnarstjórn beinir því til starfsmanna og verktaka að setja vinnubúðir niður þannig að þær valdi ekki óþægindum fyrir þeirri starfsemi sem nú þegar er á svæðinu.
2. 200705114 - Önnur mál
Reynir spurðist fyrir um dælingu og mælingar úti fyrir ós.
Haukur gerði grein fyrir þeim samningaviðræðum sem fram fara á milli Siglingastofnunar og Dýpkunarfélagsins Trölla ehf. Starfsmanni falið að koma mælingum fyrir utan ós af stað við fyrsta tækifæri.


