Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 114
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 6. apríl 2009 og hófst hann kl. 12:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Hjalti Þór Vignisson, Valdemar Einarsson, Örn Arnarson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200804073 - Dýpkun í Hornafjarðarhöfn
Hjalti gerði grein fyrir fundi með íbúum á Leirusvæði um efnisflutninga á Leirusvæði í tengslum við lokafrágang lóða á svæðinu.
Hafnarstjórn ræddi kosti þess og galla að dæla efninu eða að keyra því. Rætt um hvað væri hægt að gera til að valda íbúum sem minnstum óþægindum.
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að efninu verði dælt upp á Leirusvæði.
Hafnarstjórn leggur til að öryggisgirðing verði reist umhverfis svæðið og sett upp viðvörunarskilti á meðan dælt er. Ennfremur að reynt verði eftir mætti að koma í veg fyrir óþægindi fyrir íbúa vegna uppdælingarinnar.
2. 200705114 - Önnur mál
Engin.


